Umboðamaður Alþingis í stjórnarskrá
B-nefnd Stjórnlagaráðs hefur kynnt tillögu um nýjan kafla um sveitarfélög í stjórnarskrá. Þar er lagt til að stjórnarskrárbinda svokallaða nálægðarreglu, en hún kveður á um að þeir þættir opinberrar þjónustu sem betur þykir fyrir komið í héraði skuli vera á hendi sveitarfélaga.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnlagaráði.
Stjórnlagaráð hefur einnig lagt til nýmæli um rétt íbúa sveitarfélags til að óska eftir atkvæðagreiðslu um málefni þess og kveðið verði á um beina samráðsskyldu, við sveitarstjórnir og samtök þeirra, við undirbúning lagasetningar sem varði málefni sveitarfélaga.
Loks leggur nefndin til að embætti umboðsmanns Alþingis verði stjórnarskrárbundið.
Í tilkynningu Stjórnlagaráðs segir einnig að ráðið hafi samþykkt kafla C-nefndar um utanríkismál inn í áfangaskjal ráðsins á 13 ráðsfundi. Þar er lagt til skýrara ákvæði um meðferð utanríkismála, aukið hlutverk utanríkismálanefndar og áskilnað um samþykki þings um stuðning við hernaðaraðgerðir.
Þar er jafnframt mælt fyrir um heimild til að gera alþjóðasamninga sem fela í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu. Slíka samninga þurfi að bera undir þjóðina til samþykktar eða synjunar. Þá kemur fram að ákvörðun um stuðning við hernaðaraðgerðir skuli háð samþykki Alþingis.
Stjórnlagaráð hefur sömuleiðis samþykkt kafla C-nefndar um lýðræðislega þátttöku almennings á 13. ráðsfundi. Þar er m.a. lagt til að Alþingi skuli bera nýsamþykkt lög undir þjóðaratkvæði ef tíu af hundraði kjósenda krefjast þess. Einnig skal Alþingi láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin málefni sem varða almannahag ef 10% kjósenda krefjast þess. Þó er ekki hægt að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um fjárlög, fjáraukalög, lög um skattamálefni, lög um ríkisborgararétt og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum. Lagt er til að ⅔ hluti Alþingis þurfi til að samþykkja frumvarp til breytinga á stjórnarskrá. Nái frumvarpið samþykki skal það borið undir þjóðaratkvæði.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 29. júlí 2011, Innlent Stjórnarskrá verði breytt umtalsvert
- Miðvikudagur, 29. febrúar 2012, Innlent Sendu stjórnlagaráði bréf
- Þriðjudagur, 15. mars 2011, Innlent Vilja þjóðaratkvæði um stjórnlagaráð
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Skoði betur kaflann um forsetann
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































