Fallin frá kúlulánahugsuninni
Stórframkvæmdir við breikkun Suðurlands- og Vesturlandsvegar verða ekki settar í flýtiframgangsröð að sögn Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra. Stjórnvöld eru fallin frá kúlulánahugsuninni við fjármögnun framkvæmda, að sögn hans.
„Þetta byggði á því að við ætluðum að fjármagna þessi verkefni með vegagjöldum. Við höfum fengið mjög eindregin andmæli við því úr samfélaginu, frá samtökum bifreiðaeigenda og frá atvinnurekendum líka,“ segir Ögmundur.
Ögmundur lýsir ánægju með að verkalýðs- og atvinnurekendasamtökin hafi ákveðið í dag að falla ekki frá kjarasamningunum til þriggja ára.
Spurður um gagnrýni SA og ASÍ á ríkisstjórnina fyrir að efna ekki fyrirheit um stórframkvæmdir í vegagerð segir Ögmundur að þessi umræða sé að þróast mjög vel. „Ég tel að menn eigi að einblína á það sem er sameiginlegt í þessari umræðu. Við viljum stuðla að samgöngubótum, auknu öryggi í samgöngukerfinu og að finna verkefni sem skapa sem flestu fólki atvinnu,“ segir Ögmundur.
Hann segist fagna þeim áherslum sem komið hafi frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda um vegabætur, sem sé mjög í þeim anda sem hann hafi talað fyrir.
Aðspurður segir Ögmundur að framkvæmdir í vegagerð muni ekki aukast umfram getu. „Við erum fallin frá kúlulánahugsuninni um að ráðast í framkvæmdir og sjá svo bara til hvernig við ætlum að borga fyrir þær. Núna viljum við sjá fyrir endann á öllum hlutum,“ segir ráðherrann.
Sex milljarðar fara til nýframkvæmda í vegagerð á þessu ári og spurður hvort auka eigi framlög til þeirra segist Ögmundur vilja sem ráðherra samgöngumála fá sem mesta fjármuni í þann málaflokk. „En þá þarf að skoða það með hliðsjón af heildarútgjöldum og forgangsröðun útgjalda ríkisins og þá horfum við líka til velferðarkerfisins, menntakerfisins og allra annarra hluta. Aauðvitað vil ég stuðla að því að vegakerfið verði bætt.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Innlent Fyrirheitið var slegið af
- Þriðjudagur, 7. september 2010, Innlent Framkvæmt fyrir 38 milljarða
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Þriðjudagur, 23. nóvember 2010, Innlent Enn ósamið um vaxtakjör
- Þriðjudagur, 19. júlí 2011, Innlent Á að fá úrlausn í Noregi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































