Kreditkort kærir til áfrýjunarnefndar
Kreditkort ætlar að kæra til áfrýjunarnefndar neytendamála þá niðurstöðu Neytendastofu að framkvæmd greiðsludreifingar sem korthöfum hefur verið boðið upp á frá 1991 brjóti i bága við ákvæði laga um neytendalán.
Martha Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Kreditkorts, segir í yfirlýsingu að ef niðurstaða Neytendastofu verði staðfest af áfrýjunarnefnd neytendamála hafi hún í för með sér verulegt óhagræði fyrir neytendur.
„Það er ekki aðeins Kreditkort sem hefur boðið korthöfum upp á framkvæmd greiðsludreifingar með þessum hætti, heldur allir kortaútgefendur MasterCard og Visakorta,“ segir hún í yfirlýsingu.
„Við höfum litið svo á að með umræddri greiðsludreifingu sé verið að veita viðskiptavinum greiðslufrest. Til þessa hafa korthafar getað gengið frá greiðsludreifingu símleiðis en ef niðurstaða Neytendastofu verður staðfest verður slík þjónusta ekki lengur í boði. Korthafar verða þá að mæta til viðkomandi kortafyrirtækis og ganga frá sérstökum lánasamningi, svipuðum og raðgreiðslusamningi hjá kaupmönnum, ef þeir þurfa greiðsludreifingu á kortareikningi sínum. Þessu mun fylgja mikið óhagræði fyrir viðskiptavini og meiriháttar kerfisbreyting fyrir alla útgefendur kreditkorta, sem í 20 ár hafa boðið upp á framkvæmd greiðsludreifingar með fyrrnefndum hætti,“ segir Martha ennfremur.
Bloggað um fréttina
-
Erlingur Alfreð Jónsson #117. Ég hef líka kært ákvörðun Neytendastofu til áfrýjunarnefndar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. september 2011, Innlent Kreditkort breyta fyrirkomulagi greiðsludreifingar
- Föstudagur, 23. september 2011, Innlent Kreditkort brutu lög
- Þriðjudagur, 21. júní 2011, Innlent Kreditkort brjóta lög
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Lýsing talin hafa brotið lög
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Ákvæði um vexti brutu gegn lögum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































