Staðfesta kjarasamning

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að staðfesta gildistöku kjarasamninga frá 22. júní 2011 í samræmi við ákvæði kjarasamninganna sem undirritaðir voru 5. maí sl. Með því öðlast samningarnir gildi til 31. janúar 2014.

Segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins að SA telja að atvinnuleiðin sé eina færa leiðin fyrir þjóðina út úr kreppunni og stöðugleika á vinnumarkaði nauðsynlegan til þess að hægt sé að bæta lífskjör og minnka atvinnuleysi.

„Ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram fjárfestingar- og hagvaxtaráætlun, sem liggja átti fyrir í lok maí, en fjárfestingar eru lykilforsenda þess að hér náist 4-5% hagvöxtur á árunum 2012 og 2013.

Sérfræðinefnd ríkisstjórnarinnar gaf stefnu hennar í sjávarútvegsmálum falleinkunn og sama hefur OECD gert. SA krefjast þess að ríkisstjórnin standi við eigin yfirlýsingar um raunverulega sátt um hagkvæman sjávarútveg.

 Samtök atvinnulífsins vinna að því að tryggja hag alls atvinnulífsins og þjóðarinnar. Tækju  samningarnir ekki gildi 22. júní hefði það mikla röskun og óvissu í för með sér. Samtök atvinnulífsins telja slíka ákvörðun ekki réttlætanlega þrátt fyrir vanefndir ríkisstjórnarinnar.
 Atvinnuleiðin og hagvöxtur eru forsendur þess að atvinnulífið rísi undir kjarasamningunum og að unnt verði að auka kaupmátt fólks á næstu árum," segir í yfirlýsingu frá Samtökum atvinnulífsins.
  

Forsendur samninganna verða metnar af sérstakri forsendunefnd aðila í janúar 2012 og janúar 2013 og ef þær standast halda þeir gildi sínu. Ef forsendur standast ekki getur annað tveggja gerst, að þeir haldi gildi sínu með breytingum sem aðilar koma sér saman um eða að þeim verði sagt upp af öðrum hvorum aðila eða báðum og verða þeir þá lausir, annað hvort frá 1. febrúar 2012 eða 1. febrúar 2013, samkvæmt upplýsingum frá SA.

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa fjallað um gildistökuna í samræmi við kjarasamningana frá 5. maí sl. Þar er kveðið á um að lagabreytingar og stjórnvaldsákvarðanir sem getið er um í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana skuli hafa gengið eftir.


Alþingi hefur þegar samþykkt nokkrar lagabreytingar í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og undirbúningur að ýmsum öðrum málum er ýmist hafinn eða hefst eftir atvikum síðar vegna mála sem ljúka þarf á haustþingi.

„Tvö mikilvæg mál hafa ekki gengið eftir eins og til stóð samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Annars vegar hefur fjárfestingar- og hagvaxtaráætlun ekki verið lögð fram og sameiginleg vinna vegna fjárfestinga í samgöngumannvirkjum hefur engan veginn verið í samræmi við það sem stefnt var að. Hins vegar hefur frumvarpssmíði og lagasetning um sjávarútvegsmál tekið allt aðra stefnu en ríkisstjórnin setti fram í sérstakri bókun sem var hluti yfirlýsingar hennar 5. maí sl. í tengslum við kjarasamningana," segir í tilkynningu frá SA.

Sjá nánar hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi

06:08 Umferðaróhapp varð laust eftir miðnætti á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Grunur leikur á um ölvun við akstur. Meira »
Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
Framstuðari á PT.Cruisher 2005-8
Til sölu NÝR framstuðari á þennan fallega bíl. Fullt verð hér er 135 þús. Bíljö...
Dekurrófa til sölu - skoða skipti á jeppa
HÚSBÍLL TIL SÖLU skoða skipti á jeppa Fiat Joint 148 árg. 2005 ekinn 40 þús. ...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
HEFUR VERIÐ Í GEYMSLU, SEM ÞARF AÐ LOSA FLJÓTLEGA. FÆST Á AÐEINS 10.000 UPPL....
 
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...