65,7% andvíg málshöfðun

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. stækka

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn

Tveir þriðju hlutar landsmanna, eða 65,7%, er andvígur því að höfðað hafi verið sakamál gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir landsdómi. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR, en þar segir ennfremur að mikill munur sé á afstöðu fólks eftir stjórnmálaskoðun.

MMR kannaði hvort fólk væri almennt fylgjandi eða andvígt því að höfðað hafi verið sakamál fyrir landsdómi gegn Geir.

Segir að mikill meirihluti þeirra sem hafi tekið afstöðu séu andvígir ákærunni
gegn Geir eða 65,7%.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 48,3% vera mjög andvígir, 17,3% frekar andvígir, 14,6% frekar fylgjandi og 19,7% sögðust mjög fylgjandi að höfðað hafi verið sakamál gegn Geir  vegna refsiverðrar háttsemi hans í embættisfærslu sinni á árinu 2008.

Mikill munur reyndist á afstöðu fólks eftir því hvar það stendur í stjórnmálum. Andstaðan reyndist mest á meðal Sjálfstæðismanna, en 91,7% þeirra sem tóku afstöðu og myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ef kosið yrði í dag, sögðust frekar eða mjög andvígir því að höfðað hefði verið sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi oddvita Sjálfstæðisflokksins.

Aftur á móti voru 73,4% þeirra sem tóku afstöðu og myndu kjósa Vinstri-græna, ef gengið væri til kosninga í dag, fylgjandi því að höfðað hafði verið sakamál gegn Geir H. Haarde.

Niðurstöður könnunarinnar sýna mikla breytingu á afstöðu almennings frá því skömmu fyrir ákvörðun Alþingis um að lögsækja Geir H. Haarde í september 2010. Í könnun MMR sem birt var þann 17. september 2010 voru yfir 60% þeirra sem tóku afstöðu sem sögðust fylgjandi því að höfða bæri sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi ráðherrunum Árna M. Matthiesen (66,3%), Geir H. Haarde (64,2%) og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur (60,4%). Nokkuð færri eða 51,8% sögðust þá fylgjandi því að höfða bæri sakamál fyrir landsdómi gegn Björgvin G. Sigurðssyni fyrrverandi viðskiptaráðherra.

867 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára svöruðu könnuninni, sem var framkvæmd dagana 9-15. júní sl.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
Hermannaúlpa
Hermannaúlpa til sölu, 2 stk. L- XL. Upplýsingar í síma: 8935005...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
 
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...