Leitið beint til kirkjunnar

Landakotskirkja stækka

Landakotskirkja mbl.is/ÞÖK

Pétur Bürcher, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, óskar eftir því fyrir hönd kaþólsku kirkjunnar að fagráð um kynferðisbrot leiti eftir upplýsingum og beini fyrirspurnum bréflega til biskups kaþólsku kirkjunnar í stað þess að ásaka biskup um aðgerðarleysi og þögn í fjölmiðlum. Þetta kemur fram í bréfi sem Bürcher hefur sent til Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra.

Um helgina birtist í Fréttatímanum grein undir fyrirsögninni „Kynferðisleg misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.”

Af því tilefni sendi kaþólska kirkjan frá sér fréttatilkynningu.

„Einnig hefur blaðið birt viðtöl við Guðrúnu Ögmundsdóttur sem stýrir nýju fagráði á vegum ráðuneytisins um kynferðisbrot. Gerir hún m.a. að umtalsefni fund sem ráðuneytið boðaði biskup kaþólsku kirkjunnar til fyrir skömmu.

Með biskupi kom til fundarins lögmaður kirkjunnar en auk ráðherra og aðstoðarmanns hans og ráðuneytisstjóra sátu fundinn Bragi Guðbrandsson frá Barnaverndarstofu og Björgvin Björgvinsson frá lögreglunni í Reykjavík.

Á fundinum gerði ráðherra grein fyrir því að einstaklingur hefði komið að máli við sig og rætt um kynferðislegt áreitni sem hann hafi orðið fyrir af hálfu prests innan kaþólsku kirkjunnar. Ennfremur hafi bróðir hans lýst misnotkun sem hann hafi orðið fyrir sem barn af hendi þáverandi skólastjóra Landakotsskóla sem var prestur innan kaþólsku kirkjunnar og samstarfskonu hans.

Á fundinum var einnig fjallað almennt um mál af þessu tagi og viðbrögð við þeim þ.m.t. mikilvægi þess að hafa verklagsreglur og viðbragðsáætlun tilbúna kæmu svona mál upp.

Af hálfu kaþólsku kirkjunnar var fundarmönnum gerð grein fyrir því að síðastliðinn vetur hafi biskupi borist erindi frá einstaklingi er varðaði kynferðislegt áreitni prests innan kirkjunnar og skýrt frá viðbrögðum biskups við því.

Að gefnu tilefni skal áréttað að biskup kaþólsku kirkjunnar brást án tafar við bréfinu. Viðkomandi var boðaður til fundar með biskupi og í kjölfar var málið rannsakað innan kirkjunnar að því marki sem hægt var, en viðkomandi prestur var látinn og mörg ár liðin frá atvikinu. Leitað var álits og ráðgjafar frá lögmanni Kaþólsku kirkjunnar við umfjöllun málsins.

Fyrir liggja bréfaskipti aðila vegna málsins og af hálfu kirkjunnar er ekkert því til fyrirstöðu að ráðherra og/eða önnur yfirvöld fá afrit þeirra. Eðli málsins samkvæmt er þó rétt að samþykki hlutaðeigandi einstaklings þar að lútandi liggi fyrir.

Af hálfu kirkjunnar var ekki tekin afstaða til ásakana um kynferðislega áreitni starfsmanns kirkjunnar en viðkomandi einstaklingur var hvattur til að leita til lögreglu eða annarra yfirvalda vegna málsins. Kaþólska kirkjan myndi í hvívetna aðstoða yfirvöld við að upplýsa málið. Biskup tekur mjög alvarlega þær ásakanir sem fram eru bornar um kynferðislegt áreiti innan vébanda kaþólsku kirkjunnar.

Vill kirkjan af öllum mætti styðja við þá einstaklinga sem hlut eiga að máli og stendur öll sú þjónusta sem kirkjan hefur fram að bjóða þeim opin. Þá skal áréttað það sem fram kom á fundinum með ráðherra, að kaþólska kirkjan vinnur í samvinnu við biskupdæmin á Norðurlöndum að setningu samræmdra vinnureglna og viðbragðsáætlunar komi upp tilvik af þessu tagi.

Ráðherra eða fagráði fyrir hans hönd er velkomið að fylgjast með þeirri vinnu sem hér um ræðir. Þá væri  kaþólsku kirkjunni akkur í því að fá gögn og upplýsingar um skipan þessara mála hjá öðrum aðilum svo sem þjóðkirkjunni. Af hálfu kirkjunnar er sérstaklega óskað eftir fundi með fagráði í þessu skyni.

Af hálfu kaþólsku kirkjunnar er þess óskað, að fagráð um kynferðisbrot leiti eftir upplýsingum og beini fyrirspurnum bréflega til biskups Kaþólsku kirkjunnar í stað þess að ásaka biskup um aðgerðarleysi og þögn í fjölmiðlum.

Reyndar var um það rætt á fyrrnefndum fundi með ráðherra að lögmanni kaþólsku kirkjunnar yrði sendar upplýsingar sem ekki hafa enn borist. Kaþólska kirkjan er trúfélag og heldur uppi öflugu mannúðar- og menningarstarfi innan sinna vébanda. Það er ekki hlutverk stjórnvalda að grafa undan því trausti sem kirkjan nýtur meðal almennings heldur styðja kirkjuna og styrkja í starfsemi sinni.

Kaþólska kirkjan er sammála ráðherra um nauðsyn þess að setja vinnu- og verklagsreglur vakni grunur um kynferðisbrot innan kirkjunnar. Slík vinna á sér stað innan kirkjunnar og er einboðið að vinna að því máli í samvinnu við yfirvöld.

Það er hvorki hlutverk stjórnvalda né kirkjunnar heldur dómstóla að undangenginni lögreglurannsókn að skera úr um sekt eða sakleysi þeirra sem sökum eru bornir. Umfjöllun í fjölmiðlum um kynferðisbrot innan Kaþólsku kirkjunnar gefur tilefni til að árétta þetta og jafnframt að spyrja hver sé réttur þeirra látnu einstaklinga sem ásakanirnar beinast að," segir í bréfi Péturs Bürcher, biskups.

Sjá frétt mbl.is um málið í gær

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
Glæsilegir meðferðabekkir frá USA
EarthLite bekkir frá USA. Bestu gæði. www.Rikki.is 561 9400...
Open ljósaskilti
Mjög áberandi Open ljósaskilti til sölu. Ljósin blikka og fara ekki framhjá nein...
 
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...