Segja ráðherra tala gegn yfirlýsingu ríkisstjórnar

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Samtök atvinnulífsins saka innanríkisráðherra, Ögmund Jónasson, um að tala gegn yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því 5. maí sl. um vegaframkvæmdir. Segir í frétt á vef samtakanna að ef ráðherra snúi ekki af villu síns vegar sé vart annar kostur en að fela öðrum að fara með samgöngumálin í ríkisstjórninni.

„Samtök atvinnulífsins hafa í tengslum við kjarasamninga lagt áherslu á að hefja sem fyrst átak um samgönguframkvæmdir. Móta þarf nýja heildarstefnu um gjaldtöku á umferðina þar sem milduð eru áhrif hækkunar á innkaupsverði eldsneytis og þess í stað tekin upp innheimta fyrir notkun tiltekinna mannvirkja.

Ríkissjóður leggur hlutfallsleg gjöld á innkaupsverð eldsneytis og þegar innkaupsverðið hækkar þá eykst sömuleiðis skattheimtan. Með því að draga úr þessari gjaldtöku og taka þess í stað upp fast gjald þegar ekið er um tilteknar samgönguæðar má draga úr sveiflum á eldsneytisverði og jafnframt tryggja örugga og jafna innheimtu tekna til að standa undir framkvæmdum. Eftir því sem nýir orkugjafar s.s. metan, metanól og rafmagn halda innreið sína verður óhjákvæmilegt að taka upp annað kerfi gjalda á umferðina en nú er. Búist er við að gjaldtaka, sem byggir á notkun, verði allsráðandi erlendis eftir 5-10 ár. Svo verður einnig hér á landi og slíkt kerfi mun ná til landsins alls. Það er þjóðhagslega hagkvæmt að geta stýrt umferð með gjaldtöku þar sem mismunandi gjöld verða lögð á s.s. eftir umferðarþunga, þunga ökutækja, svæðum og tímabilum.

Með samstarfi stjórnvalda, aðila á vinnumarkaði, lífeyrissjóða, sveitarstjórna og annarra hagsmunaaðila á að vera unnt að finna leið til að skapa samstöðu um málið. Hafa verður í huga að nýjar arðbærar vegabætur treysta innviði landsins og skapa hundruð starfa. Þá auka framkvæmdirnar öryggi í umferðinni og spara þjóðfélaginu stórfé á ári hverju.

 Til að koma atvinnulífinu af stað og til að unnt sé að auka kaupmátt fólks eins og lagður er grundvöllur að í kjarasamningunum er nauðsynlegt að auka fjárfestingar í hagkerfinu. Fullkomin samstaða ríkir um þetta milli samningsaðila og einnig er aukning hagvaxtar og fjárfestinga meginþáttur í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana sem dagsett er 5. maí en þar segir:

 „Áfram verður unnið að útfærslu tillagna um vegaframkvæmdir á Suðvesturlandi og fjármögnun þeirra og er mikilvægt að samstaða náist um þau áform. Hér er um tugmilljarða framkvæmdir að ræða sem dreifast á nokkur ár, en fyrstu áfangar eru tilbúnir til útboðs. Stjórnvöld munu skipa starfshóp með fulltrúum SA, ASÍ, fjármálaráðuneyti og innanríkisráðuneyti er reyni til þrautar að finna útfærslur sem gera mögulegt að ráðast í umfangsmiklar samgönguframkvæmdir á Suðvesturlandi og eftir atvikum víðar, fjármagnaðar með sérstökum hætti. Niðurstaða verði fengin í þá vinnu fyrir lok maí."

  Yfirlýsingin er gefin af ríkisstjórninni allri og einstök atriði hennar eru samin með vitund og vilja viðkomandi fagráðherra. Þannig hefur innanríkisráðherra sem fer með samgöngumálin samþykkt og jafnvel samið sjálfur þann hluta yfirlýsingarinnar sem um vegaframkvæmdirnar fjalla.

  Nú hefur það komið skýrt fram á síðustu dögum að ráðherrann er á móti eigin yfirlýsingu og ætlar ekkert með hana að gera. Þá vaknar spurningin hvort ríkisstjórnin í heild og þingmenn hennar sætti sig við að ráðherrann geri alla ríkisstjórnina að ómerkingi.

Því verður vart trúað að svo fari. Verkstjórar stjórnarsamstarfsins hljóta að bregðast við og sjá til þess að innanríkisráðherra snúi af villu síns vegar. Takist það ekki er vart annar kostur en að fela öðrum að fara með samgöngumálin í ríkisstjórninni.

Sá kostur er einfaldlega ekki í boði að ríkisstjórnin standi ekki við yfirlýsingu sína," segir á vef Samtaka atvinnulífsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Yamaha DT50R
Til sýnis og sölu hjá Yamaha/Artic Trucks. 80cc kit kraft sía og stærri blöndung...
TOYOTA LAND CRUISER
Toyota Land Cruiser 120 VX Nýskr. 9/2005, ekinn 153 þ. km, d...
Fellihýsi til sölu
Palamino Colt 9 ft. árg. 2007. Fortjald, svefntjöld, hitamiðstöð, ísskápur o.fl....
Opnaðu hliðið með símanum
Með einföldum búnaði er hægt að opna hlið og bílskúrshurðir með gsm síma. Hægt e...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...