Segir breytingar á kvótakerfinu óraunhæfar

LIlja Mósesdóttir, alþingismaður.
LIlja Mósesdóttir, alþingismaður. mbl.is / Kristinn Ingvarsson

Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, segir að verið sé afvegaleiða umræðuna í þjóðfélaginu með því að leggja til að gerðar verði breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem aldrei geti orðið af. Þetta kemur fram á Facebook-síðu hennar í dag.

„Fyrning skuldsetts kvóta mun leiða til málaferla og ógna endurreistu bankakerfi. Umræðan gefur fólki von um réttlæti sem búið er koma í veg fyrir að geti orðið,“ segir Lilja.

Facebook-síða Lilju Mósesdóttur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert