Dæmt til að greiða 4,7 milljónir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tryggingafélag til að greiða múrarmeistara, sem lenti í alvarlegu slysi árið 2007, 4,7 milljónir í bætur.
Maðurinn, sem er sjálfstætt starfandi múrarameistari, féll af vinnupalli í janúar 2007 með þeim afleiðingum að hann hlaut 50% varanlega örorku. En fram kemur í dómnum að vinnupallurinn hafi verið vanbúinn þegar slysið varð.
Í greinargerð mannsins, sem hefur starfað við múrverkí tæpa fjóra áratugi, kemur fram að vinnupallurinn hann notaði til að flytja 200 lítra vatnstunnu eftir hafi verið ófullnægjandi hvað varðar fallvarnir næst svölum sem maðurinn virðist hafa verið á leiðinni upp á, auk þess sem 80 cm bil milli vinnupallsins og svalanna hafi verið brúað með dokaplötu sem hafi verið mjórri en vinnupallurinn og svalirnar.
Fram kemur í dómi héraðsdóms að 26. september 2009 hafi tryggingafélagið greitt manninum 6,5 milljónir kr. í bætur vegna slyssins. Við uppgjör var á því byggt að stefnandi bæri 1/3 sakar.
Maðurinn tók við bótunum með fyrirvara um alla kröfuliði uppgjörsins.
Í málinu sem héraðsdómur hefur nú dæmt í, krafðist maðurinn félagið um frekari bætur vegna slyssins. Ágreiningur laut að eigin sök mannsins í slysinu og deilt var um viðmiðunartekjur.
Deilt var um frekari fjárkröfur mannsins vegna tímabundinnar örorku og vegna varanlegrar örorku. Ekki var um tölulegan ágreining að ræða en deilt var um þær forsendur sem byggt var á af hálfu stefnanda. Ágreiningur var ekki um kröfu stefnanda um bætur vegna varanlegs miska og þjáningabætur.
Dómari segir að þótt fallast megi á að maðurinn hafi ekki sýnt fulla aðgæslu með því að kanna ekki ástand pallsins nánar áður en hann lagði af stað með tunnuna þykir, eins og atvikum háttar, aðgæsluleysi hans svo lítilvægt í samanburði við það hvað pallurinn var vanbúinn og hættulegur að ekki þykja efni til þess að leggja sök á stefnanda vegna slyssins. Telst stefndi því bera fulla sök á slysinu 12. janúar 2007 með því að hafa ekki tryggt að aðstæður á vinnustað væru fullnægjandi.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Innlent Fær 50 milljónir í bætur
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent Lét hjólið prjóna en fær samt bætur
- Mánudagur, 30. janúar 2012, Innlent Lögmaður hermdi eftir málsaðila
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Innlent Dæmt til að greiða fullar skaðabætur
- Þriðjudagur, 26. apríl 2011, Innlent Þarf að bera helming tjónsins sjálfur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































