Sjúkraliðar hjá borginni reiðir

Sjúkraliðar hafa enn ekki náð samningi við Reykjavíkurborg, aðeins ríkið. stækka

Sjúkraliðar hafa enn ekki náð samningi við Reykjavíkurborg, aðeins ríkið.

Þó að sjúkraliðar séu búnir að semja við ríkið er enn ósamið við Reykjavíkurborg. Samningar hafa verið lausir síðan árið 2009 og síðasti samningur var gerður 2008. Mikil reiði er ríkjandi meðal sjúkraliða hjá borginni, sem funda á morgun um sín mál.

„Fjallað verður um alvarlega stöðu í kjaramálum sjúkraliða hjá Reykjavíkurborg. Ekkert hefur þokast í samkomulagsátt þrátt fyrir margra mánaða samningaþóf. Sjúkraliðar hjá Reykjavíkurborg eru hvattir til að mæta, á fundinum verður tekin ákvörðun um viðbrögð við þessari alvarlegu stöðu," segir í fundarboði en sjúkraliðar munu koma saman í húsakynnum BSRB.

Um er að ræða sjúkraliða er starfa á hjúkrunarheimilum sem Reykjavíkurborg rekur og einnig þá sem vinna við heimahjúkrun. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir hvorki hafa gengið né rekið í viðræðum við borgina og nú síðast hafi ríkissáttasemjari metið stöðuna svo að ekki væri ástæða til að halda næsta samningafund fyrr en í byrjun ágúst nk. Á sama tíma eru sjúkraliðar í viðræðum við önnur sveitarfélög og næsti slíki samningafundur hefur verið boðaður á fimmtudag.

Kristín segist vilja heyra hljóðið í sínum félagsmönnum hjá borginni á morgun, áður en hægt sé að kveða upp úr um hvort gripið verði til einhverra verkfallsaðgerða eða vinnustöðvunar. Þolinmæði sjúkraliða sé amk. á þrotum og framkoma samninganefndar borgarinnar sé ólíðandi.

Að sögn Kristínar hafa sjúkraliðar hjá ríkinu náð nokkrum samningum frá því að starfsfélagar þeirra hjá borginni fengu síðast samning fyrir þremur árum, t.d. eingreiðslur í þrígang og samningsbundnar hækkanir. Hefur myndast launabil á milli þessara stétta, innan sama fagfélagsins, og á byrjunarlaunum sjúkraliða hafi munað 10% - starfsmönnum hjúkrunarheimila og heimahjúkrunar í óhag. Kristín telur þennan mun enn hafa aukist eftir nýgerðan samning við ríkið.

„Það virkar mjög undarlega á okkur að ekki sé hægt að ganga frá samningi við Reykjavíkurborg," segir Kristín. Hjúkrunarheimili sem um ræðir eru m.a. Seljahlíð, Droplaugarstaðir og Dalbraut, auk heimahjúkrunar.

Að sögn Kristínar hefur gengið erfiðlega að manna stöður sjúkraliða á þessum hjúkrunarheimilum, einkum á Droplaugarstöðum. Ljóst sé að launamunurinn sé farinn að fæla sjúkraliða frá og þeir leiti frekar í önnur störf.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
CAVALIER HVOLPAR
Cavalier hvolpar til sölu. Erum með yndislega cavalier hvolpa til sölu. Kíktu á ...
NISSAN MICRA
Nissan Micra GX/LX. Nýskr. 1/1999, ekinn 115 þ.km, bensín, 5...
Frábær kraftblásari
Eigum nokkra kraftblásara eftir á frábæru verði kr.39.900.- Alvöru kraftur 280...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR. Bókhald og rekstrarráðgjöf. Sími 77 50 200 og 519 7585. www.be...
 
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...