Ráðherra varar við lögbrotum vegna vörslusviptinga
Ráðuneytið fékk sent erindi frá Samtökum lánþega þar sem stjórnvöldum er bent á að fjármögnunarleigufyrirtæki svipti umráðamenn bifreiða vörslu þeirra. mbl.is/Ómar
Innanríkisráðherra varar við lögbrotum vegna vörslusviptinga. Ráðuneytið bendir á að telji einhver sig eiga skýlausan rétt á að fá umráð eignar sem er í vörslu annars þurfi sá fyrrnefndi almennt að leita til opinbers aðila til að fá þessa heimild sína staðfesta.
Fram kemur á vef ráðuneytisins að slíkt sé unnt að gera með skjótum hætti á grundvelli laga um aðför.
Ráðuneytið segist hafa fengið sent erindi frá Samtökum lánþega þar sem stjórnvöldum er bent á að fjármögnunarleigufyrirtæki svipti umráðamenn bifreiða vörslu þeirra. Fyrirtækin byggi slíka vörslusviptingu á samningum sem dæmdir hafi verið ólögmætir. Um sé að ræða lánasamninga en ekki leigusamninga.
Samtök lánþega segja að fjármögnunarleigufyrirtækin séu þannig ekki eigendur tækjanna og þeim sé því með öllu óheimilt að ganga inn á heimili lánþega og umráðamanna bifreiðanna og taka þær úr vörslu þeirra síðarnefndu án þess að fyrir því sé skýr aðfararheimild lögum samkvæmt.
Því sé nauðsynlegt sé að stjórnvöld grípi þegar inn í og stöðvi vörslusviptingar á eignum fólks sem og starfshætti þá sem þessi fjármögnunarleigufyrirtæki beita.
Innanríkisráðuneytið segir, að samkvæmt 78. gr. aðfararlaga sé þeim sem telji sér með ólögmætum hætti aftrað að neyta réttinda sem hann telji sig eiga (kallaður gerðarbeiðandi) og geti fært sönnur á rétt sinn með skriflegum sönnunargögnum, heimilt að beina til héraðsdómara beiðni um að hlutur sé tekinn úr vörslu þess sem hlutinn hafi (gerðarþola) og afhentur þeim er réttinn eigi.
Dómari tekur afstöðu til þess hvort réttur gerðarbeiðanda sé svo ótvíræður að heimila megi honum umráð hlutarins.
„Samkvæmt 3. mgr. 83. gr. aðfararlaga skal að jafnaði hafna aðfararbeiðni ef varhugavert verður talið að láta gerðina ná fram að ganga á grundvelli þeirra sönnunargagna sem heimilt er að afla. Það þýðir að leiki vafi á réttmæti kröfu gerðarbeiðanda skal hafna því að aðför fari fram. Sé slíkri aðfararbeiðni hafnað er gerðarbeiðanda óheimilt að taka eign í sína vörslu þar til leyst hefur verið úr ágreiningi aðila,“ segir innanríkisráðuneytið.
Bloggað um fréttina
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir Að semja sig frá lögum! -
Vilhjálmur Bjarnason Ekki fjárfestir Er Þyrnirós að vakna, vonandi -
Örn Gunnlaugsson Taktu frekar á hyskinu.
Innlent »
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Fjallað um bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku
- Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
- Lýst eftir stolnum bíl
- Fordæma árás á starfsmann
- Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni
- Ráðist á einn stjórnenda Dróma
- Hafna ásökunum Hagsmunasamtaka heimilanna
- Hlutverk FME að rannsaka Dróma
- Jórunn Pála formaður Vöku
- Slysavarnaskólinn fékk björgunarbúninga
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
- Kvótafrumvarp
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 28. júní 2011, Innlent Kraftajötnar í innheimtu
- Miðvikudagur, 29. júní 2011, Innlent Endurupptaka heimil vegna gengistryggðra lána
- Þriðjudagur, 21. febrúar 2012, Innlent Senda innanríkisráðherra kvörtun
- Laugardagur, 3. september 2011, Innlent Ögmundur svarar Brynjari
- Mánudagur, 20. febrúar 2012, Innlent Leiðbeinandi tilmæli skortir
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi
-
Blár Ópal tryllir lýðinn
Iðnaðarmenn
Atvinnutækifæri á Austurlandi Matthía...



































