Wikileaks gegn Visa og Mastercard
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Wikileks og Datacell, segir bótakröfur hljóða upp á milljónir evra.
Wikileaks og Datacell hyggjast í næstu viku kæra kortafyrirtækin Visa og Mastercard vegna ólöglegra afskipta af greiðslum með því að hafa stöðvað allar greiðslukortafærslur til Wikileaks. Þá stefna Wikileaks og Datacell sömuleiðis að því að kvarta til Evrópusambandsins vegna meintrar misnotkunar stóru kortafyrirtækjanna á markaðsráðandi stöðu.
Datacell er íslenskt fyrirtæki sem sér um að hýsa vefsíðu Wikileaks. Í desember á síðasta ári lokuðu Visa og Mastercard á greiðslur til Wikileaks í gegnum Datacell að beiðni bandarískra stjórnvalda. Talið er að Wikileaks hafi orðið fyrir milljóna tjóni í evrum talið vegna þessa. Nær öll starfsemi Wikileaks er byggð á frjálsum framlögum og mjög erfitt var að taka við slíkum framlögum eftir að lokað hafði verið á greiðsluþjónustu.
Sveinn Andri Sveinsson er einn lögmanna Datacell og Wikileaks. Í samtali við mbl.is segir hann málshöfðunina meðal annars beinast gegn danska fyrirtækinu Teller sem hafi séð um greiðslugáttina hjá Datacell.
„Málið verður höfðað í Danmörku vegna samningsrofa Teller við Datacell. Teller byggir á því að samningsrofin hafi verið í lagi þar sem ákvæði í samningnum við Datacell segir að það megi loka á greiðslumiðlun komi fyrirskipun frá stóru kortafyrirtækjunum,“ segir Sveinn Andri. Lögmenn Datacell muni hins vegar byggja á því að að ákvæðið sé ógildanlegt út frá 36. gr. dönsku samningalaganna þar sem talað er um bersýnilega ósanngjarnan samning.
Bótakröfur fyrir tugi milljóna evra
Sveinn Andri segir bótakröfur í málinu nema tugum milljóna evra. Hann segir það gríðarlega kostnaðarsamt fyrir Datacell að halda úti vefsíðu Wikileaks. Tölvuþjónar verði fyrir stöðugum árásum frá hökkurum sem starfi meðal annars fyrir bandarísk stjórnvöld.
Auk málshöfðunar munu Wikileaks og Datacell kvarta undan kortafyrirtækjunum til Evrópusambandsins. Sveinn Andri segir Evrópusambandið hafa heimild til að sekta fyrirtæki vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Slíkar sektir geti numið allt að 10% af veltu fyrirtækjanna. Því sé um gríðarlegar fjárhæðir að ræða.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. júlí 2011, Innlent Kvörtun send til ESB
- Föstudagur, 8. júlí 2011, Innlent Fer fram á leyfissviptingu Valitor
- Fimmtudagur, 3. nóvember 2011, Innlent Sáttafundur í sendiráði
- Föstudagur, 8. júlí 2011, Innlent VISA lokar aftur á WikiLeaks
- Mánudagur, 7. mars 2011, Innlent Vill ekki leiða WikiLeaks
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































