Borgin dæmd til að endurgreiða Brimborg
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Reykjavíkurborg til að endurgreiða bílaumboðinu Brimborg 136 milljónir króna gatnagerðargjöld ásamt vöxtum vegna lóðar, sem fyrirtækið fékk úthlutað við Lækjarmel í Reykjavík.
Er endurgreiðslan háð því, að Brimborg skili lóðinni til Reykjavíkur ásamt þeim byggingarrétti sem lóðinni fylgir. Dómurinn vísaði hins vegar frá kröfu Brimborgar um að fella úr gildi ákvörðun borgarinnar frá árinu 2009 um að neita fyrirtækinu um að skila lóðinni aftur.
Í niðurstöðu dómsins segir, að þegar Brimborg lýsti því yfir 9. október 2008 að hann skilaði lóðinni hafi hann haft réttmætar væntingar til þess, að með þeirri yfirlýsingu myndi úthlutunin ganga til baka og að gatnagerðargjöldin yrðu endurgreidd. Það hafi raunar verið stefna Reykjavíkurborgar en grundvallarbreyting hafi orðið á þeirri stefnu við efnahagsáföllin haustið 2008.
Héraðsdómur segir, að málefnalegar ástæður hafi verið fyrir þessari breytingu og hún stangaðist ekki á við ákvæði skilmála borgarinnar eða lagafyrirmæli. Ákvörðun um að breyta almennri stjórnsýsluframkvæmd, sem hafi tíðkast lengi og verið almennt kunn, verði þó jafnan að taka á formlegan hátt og kynna hana þannig að þeir sem breytingarnar varða geti gætt hagsmuna sinna.
Segist dómurinn telja, að Reykjavíkurborg hafi borið á grundvelli almennra reglna stjórnsýsluréttar að taka tillit til þeirra réttmætu væntinga Brimborgar um að fyrirtækið gæti skilað lóðinni og fengið gjöld endurgreidd. Eins og málið liggi fyrir dóminum verði að draga þá ályktun að þessa atriðis hafi ekki verið gætt af hálfu borgarinnar.
Í því ljósi verði að telja að Brimborg hafi átt rétt á því að leyst yrði úr erindi fyrirtækisins í samræmi við eldri stjórnsýsluframkvæmd. Fellst dómurinn því á fjárkröfu Brimborgar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Innlent Ítarlegri gögn leiddu til annarrar útkomu
- Mánudagur, 4. júlí 2011, Innlent Léleg stjórnsýsla hjá borginni
- Laugardagur, 23. júlí 2011, Innlent Áfrýjar Brimborgardómi
- Fimmtudagur, 12. maí 2011, Innlent Fá ekki að skila lóðum
- Fimmtudagur, 11. nóvember 2010, Innlent Hafnaði kröfu um skil á lóð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































