Léleg stjórnsýsla hjá borginni
Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, er ánægður með niðurstöðu héraðsdóms í dag. Kristinn Ingvarsson
„Þetta er mjög ánægjulegt, sérstaklega í ljósi þess hversu reksturinn er gríðarlega erfiður í þessu umhverfi,“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, um dóminn sem féll í héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Niðurstaða dómsins var sú að Reykjavíkurborg bæri að endurgreiða bílaumboðinu gatnagerðargjöld sem umboðið greiddi þegar það fékk úthlutað lóð við Lækjarmel í febrúar árið 2006. Hleypur upphæðin á 136 milljónum króna ásamt dráttarvöxtum.
„Þetta fer alveg eins og við erum búin að halda fram frá upphafi, bæði í samræmi við það sem ráðuneytið komst að á sínum tíma, að þetta væri ekki samkvæmt góðri stjórnsýslu hvernig þeir unnu þetta, og að þótt að menn kæmust að þeirri niðurstöðu að borgin gæti breytt reglum, gæti hætt að taka við lóðum, þá þyrfti að kynna það með formlegum hætti,“ segir Egill.
Hann segir niðurstöðuna vera áfellisdóm yfir vinnubrögðunum sem voru viðhöfð hjá borginni.
„Við skilum 9. október (2008) og það stendur í lögum að borgin hafi 30 daga til að endurgreiða. Við sendum síðan ítrekun 15. nóvember og dómarinn tekur einmitt fram að við sýndum ekkert tómlæti í málinu heldur gerðum allt það sem okkur bar að gera.
Það er ekki fyrr en 20. nóvember, 41 degi eftir að við höfðum skilað lóðinni, sem borgin heldur þennan borgarráðsfund sem samþykkir breyttar reglur. Fram að þeim tíma höfðum við ekki heyrt múkk frá þeim,“ segir Egill. Því hafi Brimborg haft réttmætar væntingar um að getað skila lóðinni.
„Það sem gerir okkar mál síðan enn sterkara miðað við önnur er að við vorum með tölvupóst, sem dómarinn vitnar sérstaklega í í lokaorðum dómsins, frá Ágústi Jónssyni sem sér um framkvæmd þessara mála. Þar kemur bara beinlínis fram að ef Brimborg hefur fallið frá byggingaráformum þá beri fyrirtækinu tafarlaust að skila lóðinni gegn endurgreiðslu gatnagerðargjalda.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 4. júlí 2011, Innlent Borgin dæmd til að endurgreiða Brimborg
- Laugardagur, 23. júlí 2011, Innlent Áfrýjar Brimborgardómi
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Innlent Ítarlegri gögn leiddu til annarrar útkomu
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Fimmtudagur, 17. febrúar 2011, Innlent Hjólaskóflukaup til marks um betri tíma
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































