Hraðakstur olli slysinu

Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á Gullinbrú …
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á Gullinbrú á föstudag. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Harður árekstur varð á Gullinbrú um kl. 14:30 síðastliðinn föstudag. Ökumaður á leið suður Gullinbrú missti þá stjórn á ökutæki sínu sem fór í hliðarskriði yfir á akbraut fyrir umferð úr gagnstæðri átt og lenti þar framan á ökutæki sem ekið var til norðurs, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
 
Þrír voru fluttir á slysadeild. Kona á fertugsaldri sem var farþegi í bifreiðinni sem ekið var á, er talin alvarlega slösuð. Hún var lögð inn á gjörgæslu við komu á slysadeild.  
 
Slysið er rakið til hraðaksturs ökumanns á leið suður Gullinbrú. Ökumaður þeirrar bifreiðar er 17 ára gamall og fékk ökuskírteini þremur dögum fyrir slysið. Málið er í rannsókn.

Leiðrétting

Rangt var farið með aldur og tímasetningu í tilkynningu frá lögreglu. Slysið átti sér stað um klukkan 13:40 og konan er á sjötugsaldri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert