Hraðamæling úr þyrlu ekki örugg

Þyrla Landhelgisgæslunnar sveimar yfir Sævarhöfða í Reykjavík þar sem ökumaður mótorhjólsins var loks stöðvaður. stækka

Þyrla Landhelgisgæslunnar sveimar yfir Sævarhöfða í Reykjavík þar sem ökumaður mótorhjólsins var loks stöðvaður. mynd/Benedikt Finnbogi

Héraðsdómur Suðurlands hefur komist að þeirri niðurstöðu, að hraðamæling úr þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem sýndi að mótorhjóli var ekið á allt að 235 km hraða á Suðurlandsvegi, sé ekki lögfull sönnun fyrir slíku broti.

Héraðsdómur dæmdi 27 ára gamlan karlmann í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi og svipti hann ökuréttindum í 14 mánuði fyrir að aka mótorhjóli á allt að 145 km hraða frá Kambabrún til Reykjavíkur í lok júlí á síðasta ári. Á leiðinni ók maðurinn framhjá bílum með því að fara út á umferðaröxl hægra megin á veginum. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og fór fram hjá tálmunum, sem settir voru upp. 

Fylgst var með akstri mannsins í þyrlu Landhelgisgæslunnar og var hraði mótorhjólsins þá mældur allt að 235 km á klukkustund á hluta leiðarinnar. Einnig mældi lögreglumaður á mótorhjóli hraða hjólsins allt að 245 km á klukkustund. Maðurinn játaði að hafa ekið allt of hratt en neitaði því að hafa ekið á svo miklum hraða.

Fram kemur í dómnum að dómari, sækjandi, verjandi, lögreglumenn og aðstoðarmaður dómara fóru í vettvangsferð með þyrlunni til að kynna sér aðstæður. Segir m.a. í niðurstöðu Ragnheiðar Thorlacius, héraðsdómara, að þótt tækjabúnaðurinn, sem notaður var við hraðamælingar, sé öruggur og áreiðanlegur og starfsmenn Landhelgisgæslunnar  þrautþjálfaðir fagmenn byggist hraðamæling úr þyrlu fyrst og fremst á  mati flugstjóra þyrlunnar um það hvort þyrlunni sé flogið samsíða ökutæki á jörðu niðri.

Taldi dómarinn að ekki væri komin fram lögfull sönnun á að mótorhjólinu hefði verið ekið með 235 km hraða eins og mæling þyrluáhafnarinnar sýndi. Þá taldi dómarinn heldur ekki að hraðamæling lögreglumannsins á mótorhjólinu væri lögformlega staðfest.

Lögregla krafðist þess að mótorhjólið, sem er af gerðinni  Honda CBR, yrði gert upptækt. Því hafnaði dómarinn og sagði að ekki teldust vera uppfyllt skilyrði umferðarlaga um stórfelldan eða ítrekaðan hraðakstur eða akstur sem teljist sérlega vítaverður. 

Maðurinn var einnig fundinn sekur um að hafa ekið hjólinu á Miklubraut í Reykjavík á 146 km hraða í júní í fyrra.  Maðurinn játaði það brot.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Taktu hundinn með til Akureyrar
Gisting í nýstandsettum herbergjum á besta stað í bænum. Gott verð. Upplýsingar ...
Galeon 610
Mjög vel með farinn 5.9 m með Yamaha F150 (150hp) og kerru til sölu. 5.9 mil...
Toyota Yaris árg.2005
Til sölu, ekinn aðeins 56þ. sjálfsk., filmur, spoiler, álfelgur, sumardekk, bíll...
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....