Páll Hreinsson dómari við EFTA-dómstólinn
Páll Hreinsson hæstaréttardómari, hefur verið skipaður til að vera dómari við EFTA dómstólinn frá 15. september nk. Þorgeir Örlygsson lætur þá af því starfi og tekur sæti í Hæstarétti.
EFTA–ríkin sem aðild eiga að EES-samningnum, Ísland, Noregur og Liechtenstein, hafa skipað Pál eftir tilnefningu Össuar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra.
EFTA-dómstólinn er starfræktur á grundvelli EES-samningsins til að leysa úr ágreiningsmálum um framkvæmd samningsins. Stjórnvöld í EFTA-ríkjunum sem aðild eiga að EES-samningnum standa sameiginlega að skipun í stöðuna.
Dómari við EFTA-dómstólinn skal óvefengjanlega vera öðrum óháður og uppfylla skilyrði til að skipa æðsta dómaraembætti í heimalandi sínu eða hafa getið sér sérstakan orðstír sem lögfræðingur. Hæfisskilyrðin eru að þessu leyti sambærileg við hæfisskilyrði dómara við Evrópudómstólinn.
Með hliðsjón af þeirri skipan sem viðhöfð er við val á dómaraefni við Evrópudómstólinn ákvað utanríkisráðherra að að hæfni þeirra sem sóttust eftir tilnefningu í stöðu dómara við EFTA-dómstólinn skyldi metin af sérstakri nefnd á sams konar hátt og umsækjendur um embætti hæstaréttardómara.
Í nefndinni áttu sæti Guðrún Erlendsdóttir fv. forseti Hæstaréttar, Þorgeir Örlygsson fráfarandi dómari við EFTA-dómstólinn og verðandi hæstaréttardómari og Kristján Andri Stefánsson sendiherra og fv. stjórnarmaður í Eftirlitsstofnun EFTA, sem jafnframt var formaður nefndarinnar.
Þau sem nefndin fjallaði um voru Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor, varaforseti lagadeildar Háskóla Íslands, Davíð Þór Björgvinsson dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari, Páll Hreinsson hæstaréttardómari, Róbert R. Spanó prófessor, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, og Skúli Magnússon dómritari EFTA-dómstólsins og dósent við lagadeild Háskóla Íslands.
Nefndin skilaði álitsgerð þar sem hún gerði grein fyrir þeim sem nefndin fjallaði um, málsmeðferð nefndarinnar og sjónarmiðum sem hún byggði mat sitt á. Það var mat nefndarinnar að allir þeir sem hún fjallaði um teldust hæfir til að taka stöðu dómara við EFTA dómstólinn en á grundvelli heildarmats á þeim sjónarmiðum sem nefndin byggði á, taldi hún að Páll Hreinsson hæstaréttardómari væri þeirra hæfastur.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 2. maí 2011, Innlent Eiríkur og Þorgeir hæfastir
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Innlent Fjórir sóttu um Hæstarétt
- Miðvikudagur, 14. desember 2011, Innlent Tveir EFTA-dómarar vanhæfir?
- Þriðjudagur, 31. janúar 2012, Innlent Sérfræðingar aðstoða í Icesave-máli
- Miðvikudagur, 16. mars 2011, Innlent Átta sóttu um dómaraembætti
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































