Díoxín í jarðvegi undir hættumörkum
Niðurstaða mælinga, sem Umhverfisstofnun hefur látið gera á styrk eiturefnisins díoxíns í jarðvegi, er sú að efnið er í öllum tilvikum undir þeim mörkum sem kalla á takmarkanir á nýtingu, hreinsun jarðvegs eða geti skapað hættu fyrir almenning og lífríki.
Sýni voru tekin eftir að frost fór úr jörðu og send erlendis til greiningar. Tekin voru 50 sýni af jarðvegi út um allt land, 27 sýni í nágrenni sorpbrennsla bæði starfandi og aflagðra, 10 í nágrenni iðnfyrirtækja, 4 sýni úr jarðvegi í brennustæðum og 9 viðmiðunarsýni. Einnig var tekið sýni úr sjávarseti í Skutulsfirði í nágrenni við brennslustöð Funa og úr sjávarseti úr Álftafirði til viðmiðunar.
Sum sýni á Suðurlandi voru tekin þar sem aska frá gosinu í Grímsvötnum lá yfir sýnatökustað. Greiningar á öskunni sýna að hún hefur engin áhrif á niðurstöður. Niðurstöður greininga liggja nú fyrir.
Umhverfisstofnun segir, að almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að rækta í jarðvegi, tína ber eða nýta aðrar náttúruafurðir. Búið sé að loka sorpbrennslunni Funa og mun því ekki verða meiri uppsöfnun á díoxínum í jarðvegi af hennar völdum.
Við sorpbrennsluna í Vestmannaeyjum mældist styrkur díoxína í jarðvegi á bilinu 5-40 pg/g og því þarf að mati Umhverfisstofnunar að draga úr losun díoxína þar til að koma í veg fyrir frekari uppsöfnun.
Á tveimur brennustæðum mældist styrkur díoxína í jarðvegi einnig á bilinu 5-40 pg/g og mun Umhverfisstofnun beina þeim tilmælum til heilbrigðisnefnda að efniviður brennanna sé þannig að sem minnst verði til af díoxínum við brunann.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. júlí 2011, Innlent Díoxín undir mörkum
- Mánudagur, 18. júlí 2011, Innlent Tilraun með beit í Skutulsfirði
- Miðvikudagur, 9. febrúar 2011, Innlent Taka sýni við álver og við áramótabrennur
- Fimmtudagur, 6. janúar 2011, Innlent Díoxínið var rétt yfir mörkum
- Föstudagur, 4. febrúar 2011, Innlent Díoxín í kjöti og mjólk yfir mörkum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































