Engin óæskileg litarefni í vörum Nóa Síríus
Sælgætisframleiðandinn Nói Síríus segir að engin óæskileg litarefni sé að finna í vörum fyrirtækisins. Þá segir það að eldri umbúðir verði innkallaðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Nói Síríus hefur sent frá sér vegna fréttar RÚV frá því í gærkvöldi, þar sem fjallað var um notkun ákveðinna litarefna í sælgæti og fleiri vörum. Fram hafi komið að litarefnin væri að finna í vörum frá Nóa Síríus. Fyrirtækið segir að það sé ekki allskostar rétt.
„Hið rétta er að Nói Síríus hætti að nota þessi litarefni í allri sinni framleiðslu fyrir ári síðan. Hins vegar tekur það ávallt nokkurn tíma tekur að koma nýjum umbúðum í umferð þar sem upplýsingar um litarefnin hafa verið fjarlægð. Eitthvað kann því að vera eftir af vörum þar sem upplýsingar um litarefnin koma fram, jafnvel þó að varan innihaldi þau ekki lengur,“ segir í tilkynningu.
„Rétt er að taka fram að áðurnefnd litarefni hafa ekki verið bönnuð, hvorki með lögum né reglugerðum. Það hefur þó ávallt verið markmið Nóa Síríus að vera í fararbroddi í gæðum við framleiðslu sælgætis og því var notkun litarefnanna hætt. Sömuleiðis er það stefna Nóa Síríus að neytendur geti ávallt treyst þeim upplýsingum sem fram koma á umbúðum. Nói Síríus harmar þau mistök að rangt merktar umbúðir hafi í sumum tilfellum mátt finna í verslunum og mun strax innkalla þær,“ segir ennfremur.
Þá segir að starfsfólk Nóa Síríus fylgist vel með umræðum um aukaefni í matvælum og leggi áherslu á að vera á undan löggjafanum að bregðast við nýjum kröfum markaðarins.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. maí 2011, Innlent Innkalla suðusúkkulaðivörur
- Miðvikudagur, 22. febrúar 2012, Innlent Öskudagur tekinn snemma á Akureyri
- Fimmtudagur, 9. desember 2010, Innlent Átta þúsund kakóbollar
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Innlent Víða er pottur brotinn
- Miðvikudagur, 28. september 2011, Innlent Álegg léttara en gefið var upp
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































