Fer fram á leyfissviptingu Valitor
Sveinn Andri Sveinsson, einn lögmanna WikiLeaks, segir að greiðslumiðlunin Valitor hafi rift samningi við DataCell, sem sér um að hýsa vefsíðu WikiLeaks og sagt það vera vegna þess að DataCell hafi brotið gegn samningskilmálum. Umbjóðendur hans ætla að fara fram á að Valitor verði svipt leyfi til greiðslumiðlunar.
Visa og Mastercard lokuðu á greiðslur til Wikileaks í gegnum Datacell að beiðni bandarískra stjórnvalda í desember í fyrra. Svo til öll starfsemi Wikileaks er byggð á frjálsum framlögum og mjög erfitt var að taka við slíkum framlögum eftir að lokað hafði verið á greiðsluþjónustu.
Opnað var um tíma í gær fyrir greiðslumiðlun frá DataCell til WikiLeaks, en lokað aftur í dag.
Samningi rift
„Þetta var búið að vera opið í einhvern tíma, en DataCell opnaði fyrir greiðslur til WikiLeaks á síðunni sinni á fimmtudagsmorguninn. Þá byrjuðu menn að greiða og þá byrjaði öll fjölmiðlaathyglin. Erlendir blaðamenn hringdu í Visa í Evrópu, en þar var fullyrt að ekki væri hægt að greiða. Þannig að þetta var svolítið vandræðalegt fyrir þá,“ sagði Sveinn Andri í samtali við mbl.is.
„Í morgun kom formlegt bréf frá Valitor þar sem þeir riftu samningi við DataCell og vísuðu til þess að það hefði verið brotið gegn samningsskilmálum. Því fer víðsfjarri að svo sé. Ég bað um skýringar, en hef engar fengið,“ segir Sveinn Andri.
„Einkennilegt afstaða“
„Við mótmæltum þessari ákvörðun og munum senda kvörtun til Fjármálaeftirlitsins og fara fram á að Valitor verði svipt leyfi til að starfa sem greiðslumiðlun. Þetta fyrirtæki er í algjörri einokunaraðstöðu og þeir geta bara ekkert gert það sem þeim sýnist. Þessi tvö kortafyrirtæki eru með 96% markaðsins í Evrópu og verða alltaf að vera á tánum um að framfylgja hlutleysi. Þarna eru þeir að nýta sér yfirburðastöðu sína til að hindra að fólk geti styrkt starfsemi WikiLeaks,“ segir Sveinn Andri og segir það einkennilegt að fólk geti styrkt starfsemi Ku Klux Klan og keypt vopn og þjónustu vændiskvenna með Visakorti, en því sé meinað að styrkja starfsemi WikiLeaks.
Upphaflega skýringin sem kom frá Visa í Evrópu í fyrra var að þetta gæti skaðað vörumerkið Visa ef það væri verið að nota Visa kort til að styrkja starfsemi WikiLeaks. En forsvarsmenn PayPal í Bandaríkjunum viðurkenndu hreint út að þeir hefðu fengið bréf frá bandarískum stjórnvöldum þar sem mælst var til þess að þeir mundu loka á WikiLeaks.
Sveinn Andri segir þessa þróun mála herða umbjóðendur sína í að senda kvörtun til ESB. „Við biðum með það, því við héldum að gáttin væri opin. En núna í ljósi þess hvernig þeir láta, er greinilegt að það er enginn samningsvilji af þeirra hálfu.“






































