Hvetur til ferjuflutninga yfir ána

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Jón Gunnarsson alþingismaður vill hefja ferjuflutninga yfir Múlakvísl sem allra fyrst. Hann bendir á að þetta hafi verið gert árið 1990 þegar einn stöpull brúarinnar gaf sig og það ætti að vera hægt að leysa þetta með sama hætti nú.

Jón segir að það eigi að vera hægt að hefja ferjuflutninga strax í kvöld. „Það er hægt að gera vað á ána sem fært er stærri jeppum, öflugum rútum og flutningabílum. Öðrum rútum og flutningabílum ætti ekki að vera vandamála að hjálpa yfir.

Björgunarsveitin í Vík á mjög öflugan trukk sem notaður var við þessa ferjuflutninga á minni bílum árið 1990. Hann er svo til tilbúinn í verkið og getur tekið 3 fólksbíla í ferð.

Við getum ekki látið íbúa austan við Múlakvísl búa við það að komast ekki leiðar sinnar í allt að 3 vikur og allt of mikið er undir hjá ferðaþjónustunni til að hægt sé að bíða í þennan tíma.

Lausnin er til og allur sá tækjabúnaður sem til þarf er á svæðinu,“ segir Jón.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert