Skemmdir á brúnni séð úr lofti

Í meðfylgjandi myndskeiði má glöggt sjá skemmdirnar sem urðu á brúnni yfir Múlakvísl þegar hlaup í ánni hreif brúna með sér í gærmorgun.

Vegavinnutæki hafa þegar hafið vinnu við Múlakvísl, við undirbúning á gerð  bráðabirgðabrúar.

Verið er að undirbúa flutning á efni í brúna, meðal annars frá Selfossi.

Ferðamenn eru hvattir til að fara með varúð um svæðið. Fjallabaksleið var opnuð fyrir nokkrum dögum, en hún er aðeins fær vel útbúnum bílum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert