Ætla að selflytja fólk yfir
Innanríkisráðuneytið segir, að verið sé að undirbúa að selflytja fólk, bíla og varning yfir Múlakvísl þar sem brúin fór í hlaupi aðfaranótt laugardags. Innanríkisráðuneytið hefur falið Vegagerðinni að ganga frá samningum um slíka flutninga.
Ráðuneytið segir, að einnig sé verið að ganga frá merkingum og leiðbeiningum varðandi lokun Hringvegarins.
Á meðan Hringvegurinn er lokaður við Múlakvísl geta jeppar, jepplingar, rútur og vörubílar af ákveðinni gerð ekið um Fjallabaksleið nyrðri milli byggðarlaga á Suðurlandi.
Viðgerð á veginum er hafin, verið er að ýta upp vegi að nýju brúarstæði og
efni í bráðabirgðabrú er til og er því nú ekið á staðinn. Áætlað er að smíði
bráðabirgðabrúar taki tvær til þrjár vikur en hugsanlega miðar verkinu betur
enda unnið á sólarhringsvöktum.
Innanríkisráðuneytið segist deila áhyggjum Samtaka ferðaþjónustunnar af lokun Hringvegarins og vitaskuld væri hentugast ef leiðin opnast í dag eða á morgun. Það sé hins vegar ekki raunhæft og mikilvægt sé að allrar sanngirni sé gætt og að allir sameinist um að leita lausna. Stjórnvöld vinni að því að öllum tiltækum ráðum verði beitt til að opna leið yfir Múlakvísl sem allra fyrst, eins og segi í yfirlýsingu SAF.
„Ferðaþjónusta er viðkvæmur rekstur og þegar truflanir verða á samgöngum vegna
náttúruhamfara og flóða bitnar það á ferðaþjónustu, flutningafyrirtækjunum,
landbúnaði og einstaklingum. Við aðstæður sem þessar þurfa allir aðilar að beita
ítrustu útsjónarsemi til að lágmarka tjón og truflun og leita leiða til
lausna," segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Ætla að selflytja fólk yfir/þetta var viti meira að gera ... -
Ásdís Sigurðardóttir Eins og ég sagði í gær þá verður þetta komið ... -
Njörður Helgason Upp með ermarnar! -
Jón Ingi Cæsarsson Umræðan er hreint galin. -
Kristján H. Kristjánsson IKEA útgáfa af neyðarbrú úr áli -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Rökrétt hjá Ögmundi.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 11. júlí 2011, Innlent Brúarsmíði að hefjast
- Þriðjudagur, 12. júlí 2011, Innlent Tapið eykst á hverjum degi
- Mánudagur, 11. júlí 2011, Innlent Skiptir sköpum að umferð komist á aftur
- Laugardagur, 16. júlí 2011, Innlent Fagna nýrri brú
- Þriðjudagur, 12. júlí 2011, Innlent Í viðbragðsstöðu til þess að brúa bilið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































