HR og Álftanes út úr Fasteign
Tillaga hefur verið lögð fyrir sveitarfélögin sem standa að Fasteign ehf. sem felur í sér að losa Háskólann í Reykjavík, Álftanes og eignir fjármálafyrirtækja út úr félaginu og endursemja við bankana um fyrirkomulag lána Fasteignar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og stjórnarformaður Fasteignar, segir i grein á vef Víkurfrétta að þessar breytingar sem nýlega hafi verið kynntar fyrir sveitarfélögunum sem eru aðilar að Fasteign, hafi verið metnar jákvæðar af þeim.
„Leigusamningar munu taka mið af lánsupphæð en áður voru þeim einnig
viðhalds- og rekstrarkostnaður, auk arðsemiskröfu. Sveitarfélögin munu
nú sjálf sjá um rekstur og viðhald eignanna og arðsemiskrafan er nánast
felld niður. Sveitarfélögin eignast svo eignirnar í lok leigutíma. Í
reikningsskilareglum sem sveitarfélögum er skylt að fara eftir var farið
að meta leiguskuldbindinguna út leigutíma til skuldar og því hækkuðu
skuldir sveitarfélaganna mjög mikið samkvæmt þessari reglu.
Við þessa breytingu nú lækka skuldbindingar (skuldir) sveitarfélaganna
umtalsvert en á móti lækkar hlutafé þeirra í EFF [Fasteign]. Í tilviki
Reykjanesbæjar var það hlutafé, 526 milljónir kr., upphaflega tekið af
því fé sem EFF greiddi fyrir eignirnar á sínum tíma.
Hlutfall skulda og eigna vegna þessara breytinga er hagstætt fyrir öll
sveitarfélögin, einnig Reykjanesbæ. Þess vegna mun Reykjanesbær
samþykkja að vinna eftir þessum leiðum áfram.“
Hannes Friðriksson, íbúi í Reykjanesbæ, furðar sig á þessum útskýringum bæjarstjórans og spyr hvort hlutfall skulda Reykjanesbæjar lækki við að taka á sig skuldir Álftaness.
Hannes vitnar í samningsramma sem hafi verið kynntur og verði væntanlega samþykktur í bæjarráði Reykjanesbæjar á fimmtudaginn en þar segi:
„Fasteign mun einnig ganga frá uppgjöri við Álftanes og greiðir til Íslandsbanka það sem fæst greitt upp í eftirstöðvar veðskuldabréfsins (u.þ.b. 68%). Íslandsbanki mun aflétta veðböndum af þeim eignum sem Álftanes yfirtekur og lækka lánin í samræmi við verklagsreglur bankans um lán sem breytt er yfir í ISK. Þá munu Íslandsbanki og Fasteign gera með sér nýjan lánasamning um eftirstöðvar lánsins sem ekki hafa fengist greiddar.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. júlí 2011, Innlent Gera nýja leigusamninga
- Miðvikudagur, 22. júní 2011, Innlent Taka aftur yfir viðhald og rekstur eigna
- Miðvikudagur, 17. nóvember 2010, Innlent Endurskoðendur settu fyrirvara
- Fimmtudagur, 11. nóvember 2010, Innlent Skoða framtíð Fasteignar
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Innlent Vilja kanna réttarstöðu Álftaness
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































