Gagnrýni svarað á ársfundi
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is
Ársfundurinn er haldinn á Ermarsundseyjunni Jersey, hófst síðastliðinn mánudag og lýkur á morgun, fimmtudag.
Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, segir Ísland hafa mótmælt þeirri staðhæfingu Bandaríkjamanna á fundinum. Var bent á að stofn langreyðar á Norður-Atlantshafi væri í góðu ástandi. Jafnframt var bent á að engin tengsl væru á milli þess stofns og stofns sömu tegundar hvala í Suðurhöfum. En sá stofn langreyðar er að sögn Tómasar í útrýmingarhættu.
Tómas segir veiðar Íslendinga á langreyði vera fyllilega sjálfbærar. Í því samhengi benti hann á að árlegur kvóti á langreyði er 154 dýr. Er sá kvóti byggður á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Langreyðarstofninn er að sögn Tómasar um 20 þúsund dýr. M.a. sökum þessa segir hann engan fót vera fyrir gagnrýni á veiðar Íslendinga á langreyði. Í umræðu um vísindalegan grundvöll á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins gagnrýndi Ísland jafnframt Bandaríkjamenn fyrir að sýna tvískinnung í máli sínu. Tómas segir Ísland hafa bent á að langreyðarveiðar þjóðarinnar væru ekki síður sjálfbærar en veiðar Bandaríkjamanna á norðurhval frá Alaska.
Bent var á að Hafrannsóknastofnun hefði gert vísindalegan samanburð á veiðum Bandaríkjanna og Íslands. Segir Tómas að í ljós hafi komið að veiðarnar séu jafn sjálfbærar. Nefnir Tómas að í báðum tilvikum nemi árlegur kvóti úr stofninum 0,65 prósent af stofnstærð.
Tómas segir Ísland styðja hvalveiðar Bandaríkjanna frá Alaska, líkt og aðrar sjálfbærar veiðar í heiminum. Að hans mati er mikilvægast að veiðarnar séu sjálfbærar, hvort sem um ræðir atvinnu-, frumbyggja- eða vísindaveiðar.
Athygli hefur vakið á fundinum hve fáir andstæðingar hvalveiða hafa mætt að þessu sinni. En Bretar hafa lengi verið helstu andstæðingar hvalveiða í heiminum. Segir Tómas að þegar íslenska sendinefndin gekk inn á ársfundinn í Bretlandi á mánudag hafi þeir einungis talið rétt rúman tug mótmælenda á svæðinu. Hann segist finna fyrir auknum skilningi á málstað Íslands um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda í hafinu.





































