Synti inn í tölu fullorðinna
Janus Arn Guðmundsson janus@mbl.is
Magnús er líklega eini fermingarpilturinn sem hefur þreytt svokallað Viðeyjarsund á þessum merkisdegi. Synti hann frá hafnarlægi Viðeyjarferjunnar um 900 metra leið út í Viðey. Hann var með björgunarbát sér við hlið alla leiðina og í honum voru tveir björgunarsveitarmenn ásamt foreldrum Magnúsar og lækni.
„Eitt kvöldið var ég að tuða eitthvað í pabba mínum, um að ég kynni ekki að spila á píanó eða trompet eins og sumir krakkar. Þá sagði pabbi við mig í einhverju gríni að ég ætti bara að synda út í Viðey og ég lét verða af því,“ segir Magnús, glaður með árangurinn.
Faðir Magnúsar, Sigurbjörn Þorkelsson, kveðst vera afar stoltur af stráknum. „Þetta er í raun hans eigin hugmynd, eins og hann nefndi var þetta sagt í gríni. Hann á það til að taka hugmyndir og láta verða af þeim. Hann tekur hlutunum mjög alvarlega og nær þeim markmiðum sem hann stefnir á í lífinu.“
Afabróðirinn fermdi
Hátíðarhöldin voru mikil þegar blaðamaður náði tali af afreksmanninum og fermingardrengnum, en hann kveðst hafa skellt sér úr sundgallanum eftir sundið og farið beint í heita sturtu. Um 80 manns voru viðstaddir veisluhöldin, sem fóru fram í veislusalnum úti í Viðey. Séra Karl Sigurbjörnsson biskup fermdi Magnús, en hann er afabróðir sundkappans.
Magnús er nýfluttur frá Hong Kong, þar sem hann bjó í fjögur ár ásamt fjölskyldu sinni. Faðir hans, Sigurbjörn, starfaði fyrir banka þar. „Nú erum við í sumarfríi á Íslandi og mig langaði að fermast hér.“
Fjölskyldan mun svo flytjast búferlum til Lundúna og kveðst Magnús hlakka mikið til þess að prófa að búa þar. „Ég gat bara bjargað mér á kínverskunni, en get betur talað ensku,“ segir hann og bætir við að það sé alltaf gaman að kynnast nýjum skólafélögum. Að lokum segist Magnús vera ánægður með daginn: „Dagurinn er búinn að vera frábær og ég er mjög ánægður með hann, ég hefði ekki viljað sleppa því að koma til Íslands,“ segir Magnús að lokum.





































