Greiði Stapa 5,2 milljarða

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag ALMC, sem hét áður Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki, til að greiða Stapa lífeyrissjóði tæpa 5,2 milljarða króna. Um er að ræða kröfur,  sem var lýst of seint í bú bankans vegna mistaka lögmannsstofu.

Lífeyrissjóðurinn taldi, að krafan ætti að halda gildi sínu og fá sömu meðferð og aðrar kröfur, þar sem Straumur-Burðarás (nú ALMC hf.) hafi náð nauðasamningum við kröfuhafa  sína, en ekki farið í gjaldþrot.

Undir þetta tekur héraðsdómur. Í niðurstöðu dómsins segir, að nauðasamningur, sem gerður er eftir að félag hefur verið tekið til gjaldþrota­skipta, leiði til þess að fjárhæð krafna og skilmálar breytast eftir því sem samningurinn mæli fyrir um.  Gjaldþrotaskiptunum sé hætt og stjórn félagsins taki aftur við forræði á hagsmunum þess og skuldbindingum. 

Kröfuhafi, sem komst ekki að við skiptin vegna þess að hann lýsti ekki kröfu sinni, geti krafist greiðslu kröfu sinnar, en verði að sæta lækkun hennar í samræmi við skilmála nauðasamningsins. 

Segir dómurinn, að af þessu leiði, að kröfur sem komust ekki að við skiptin, hafi ef svo má segja vaknað til lífs á ný þar sem skuldari þeirra sé ekki lagður niður.  Engin heimild sé í lögum til þess að telja kröfur falla alveg niður þó þeim hafi ekki verið lýst við gjaldþrotaskipti eða slitameðferð. 

Stapi lífeyrissjóður.
Stapi lífeyrissjóður.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert