Ekki sannað að um lán var að ræða
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað konu af kröfu karlmanns um að konan endurgreiði rúmlega 2 milljónir króna, sem maðurinn lagði inn á reikning hennar.
Deilt var um það fyrir dómi hvort um væri að ræða lán eða miskabætur, sem maðurinn ákvað að greiða konunni fyrir tjón sem hún varð fyrir vegna á líkama og sál vegna langvarandi hótana umsáturs og ofbeldis.
Fram kom í málinu, að maðurinn og konan voru saman um tíma á árinu 2006 og áttu í viðskiptasambandi til ársins 2009 en bæði ráku verslanir. Á ýmsu gekk í samskiptum þeirra og m.a. fullyrti konan að maðurinn hefði nauðgað sér árið 2007 þótt hún hefði ekki kært það til lögreglu. Maðurinn neitaði því.
Í byrjun síðasta árs átti fólkið nokkur samskipti. Maðurinn sagðist hafa viljað taka upp samband við konuna að nýju og orðið við beiðni hennar að lána henni peninga. Konan bar fyrir dómi, að maðurinn hefði sagst vera nýr og betri maður og hún hefði farið nokkrum sinnum út að borða með honum.
Fljótlega hafi hegðun hans færst í sama horf og fyrr og hann hafi farið að áreita hana og mæta á heimili hennar drukkinn. Konan sagðist þá hafa slitið öllu sambandi við manninn og fékk í kjölfarið sett á hann nálgunarbann í sex mánuði. Þá hóf maðurinn innheimtuaðgerðir og krafðist þess að konan endurgreiddi peningana, sem hann lét henni í té.
Fram kom einnig fyrir dómi, að í nóvember á síðasta ári kærði maðurinn konuna fyrir þjófnað. Konan viðurkenndi að hafa tekið stílabók með bókhaldi verslunar mannsins ófrjálsri hendi en myndir af því náðust á öryggismyndavél.
Ekki var deilt um að konan fékk samtals 2.050.000 krónur hjá manninum í janúar og febrúar 2010. Héraðsdómur segir hins vegar, að ósannað sé, að maðurinn hafi lánað konunni umrædda fjárhæð enda hefði maðurinn fyrir dómi borið, að ekki hefði verið rætt um það á sínum tíma að konunni bæri að endurgreiða fjárhæðina.
Þá liggi engar
sannanir fyrir um að lán hafi verið að ræða annað en framburður
mannsins, sem sé á skjön við framburð konunnar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. apríl 2012, Innlent Bar að tryggja sér sönnun
- Þriðjudagur, 4. október 2011, Innlent Sýknaður af ákæru fyrir nauðgunartilraun
- Fimmtudagur, 24. nóvember 2011, Innlent Sýknaður af nauðgunarákæru
- Miðvikudagur, 27. apríl 2011, Innlent Gæsluvarðhald vegna nauðgunar staðfest
- Miðvikudagur, 23. nóvember 2011, Innlent Sýknaður af nauðgunarákæru
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































