Náið fylgst með Mýrdalsjökli

Sigkatlasvæðið á upptakasvæði hlaupsins í Múlakvísl,
Sigkatlasvæðið á upptakasvæði hlaupsins í Múlakvísl, Ljósmynd/Erik Sturkell

Í gærkvöldi og nótt hefur leiðni aukist í Múlakvísl og Veðurstofan og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa fylgst náið með ástandinu á svæðinu. Rétt fyrir miðnætti varð vart við óróa í Mýrdalsjökli um leið og leiðni óx hraðar en áður.

Samband við vatnshæðamæli við Léreftshöfuð rofnaði í um klukkustund.  Í öryggisskyni var ákveðið að loka þjóðveginum um Mýrdalssand meðan ástandið var kannað. Upp úr klukkan 1:00 komst samband aftur á við vatnshæðamæli og var þá talið óhætt að opna veginn aftur að svo stöddu. Áfram verður fylgst með framvindunni. 

Vart varð við óróa í Mýrdalsjökli skömmu fyrir miðnætti.
Vart varð við óróa í Mýrdalsjökli skömmu fyrir miðnætti. Mynd/Veðurstofa Íslands
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert