Heyrði þrjár sprengingar
„Ég hef starfað við sprengingar og þekkti um leið að þetta var eitthvað því líkt. Það virtist sem það yrðu þrjár sprengingar á minna en sekúndu. Það sagði manni að þetta væri sprengiefni,“ sagði Elfar Eiríksson, skipstjóri, sem hefur starfað við sprengingar.
Hann sagði að þeir sem vinni við að sprengja vegna framkvæmda læri ýmislegt um sprengingar, eins og að hlusta og greina þær.
Elfar var staddur við Akershusvirkið skammt frá þar sem sprengingin varð í miðborg Osló í dag. Elfar er nú skipstjóri á dráttarbáti í Noregi og var á leið í kaffi með félaga sínum þegar sprengingin varð.
„Svo sá ég reykinn stíga upp og sá að það var brennisteinn í reyknum og vissi að þetta var sprengiefni. Það stígur gulbrúnn reykur upp af svona sprengiefnum. Hljóðið sannfærði mig líka strax.
Við horfðum hvor á annan félagarnir og voru vissir um að sprengingin varð ekki niðri í jörðinni. Hún var svo svakalega hávær og við fundum þrýstibylgjuna sem kom á okkur. Þetta gat ekki verið neitt sem tengdist jarðvinnuframkvæmdum.“
Elfar kvaðst hafa kveikt á útvarpinu og farið að fylgjast með fréttum. Þeir félagarnir ákváðu að halda sig fjarri vettvanginum, enda ljóst að þarna væri harmleikur á ferð.
Elfar var við miðborg Osló til um klukkan 19.00 í kvöld að norskum tíma. Hann taldi sig hafa séð sjúkrabíla í hundraðatali og sagði að margir sjúkrabílar hafi farið áleiðis til Drammen.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Miðvikudagur, 25. maí 2011, Innlent Flugu yfir gosið í gærkvöldi
- Sunnudagur, 23. október 2011, Innlent Fimmtán í Listakaupstað
- Fimmtudagur, 12. janúar 2012, Innlent Tugum tilkynnt um símhleranir
- Miðvikudagur, 8. desember 2010, Innlent Samþykkt að leggja Íbúðalánasjóði til 33 milljarða
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































