123 milljarða halli á ríkissjóði

Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið.

Tekjujöfnuður ríkissjóðs á síðasta ári varð neikvæður um 123 milljarða króna en áætlanir gerðu ráð fyrir að hann yrði neikvæður um 82 milljarða króna.

Var raunútkoman því 41 milljarði króna verri en gert var ráð fyrir í heildarfjárheimildum ársins. Þessi tekjuhalli er um 26% af heildartekjum ársins og 8% af landsframleiðslu.

Fram kemur á vef fjármálaráðuneytisins, að tekjurnar hafi verið nokkurn veginn í samræmi við áætlanir en gjöldin voru 42 milljörðum króna hærri.

Fjármálaráðuneytið segir, að viðbótarframlag til Íbúðalánasjóðs að upphæð 33 milljörðum króna, sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum, skýri frávikið að stórum hluta. Einnig hafi verið veruleg frávik í nokkrum óreglulegum liðum sem erfitt sé að áætla nákvæmlega fyrir. Nægi þar að nefna afskriftir skattkrafna, lífeyrisskuldbindingar og greiddan fjármagnstekjuskatt.

Á síðasta ári var 139 milljarða króna halli á ríkissjóði.  

31% af landsframleiðslu

Tekjur ársins urðu alls 479 milljarðar króna sem jafngildir um 31% af landsframleiðslu ársins. Árið 2009 námu þær tæpum 440 milljörðum króna eða 29% af landsframleiðslu þess árs og aukast þær um 39 milljarða á milli ára. Þessi niðurstaða er nokkurn veginn í samræmi við tekjuáætlun ársins 2010, að sögn ráðuneytisins.

Gjöld ríkissjóðs reyndust um 602 milljarðar króna. Árið 2009 námu þau tæplega 579 milljörðum króna. Heildarútgjaldaheimildir hljóðuðu upp á 578 milljarða króna og því voru raunútgjöld um 24 milljörðum króna hærri en fjárheimildir gerðu ráð fyrir.

Vefur fjármálaráðuneytisins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert