Tekjur forstjóra dragast saman

stækka

mbl.is/Arnaldur Halldórsson

Tekjur forstjóra stærstu fyrirtækja landsins og bankamanna hafa dregist töluvert saman milli ára en laun millistjórnenda og lækna hafa staðið í stað og laun skipstjóra og stýrimanna hafa hækkað. Þetta má m.a. lesa út úr Tekjublaði Frjálsrar verslunar, sem kom út í morgun en þar eru birtar upplýsingar um tekjur 3000 Íslendinga, unnar úr álagningarskrá ríkisskattstjóra.

Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, sagði í morgunþætti Rásar 2, að tekjur forstjóra 200 stærstu fyrirtækja landsins hefðu dregist saman á síðasta ári frá árinu 2009. Samkvæmt tekjublaðinu voru forstjórar 200 stærstu fyrirtækjanna með 2 milljónir króna að jafnaði í tekjur á mánuði 2010 en 2,2 milljónir árið 2009.

Þá voru 200 tekjuhæstu bankamennirnir með 1550 þúsund á mánuði að jafnaði í tekjur á síðasta ári en tekjur þeirra voru 2 milljónir að jafnaði árið 2009. 200 tekjuhæstu millistjórnendur fyrirtækja voru með 1650 þúsund að jafnaði í mánaðartekjur í fyrra en 1700 þúsund árið 2009. 200 tekjuhæstu læknarnir voru að jafnaði með 1440 þúsund krónur í mánaðarlaun. Sjómenn hafa hins vegar hækkað í launum milli ára og að sögn Jóns voru tíu tekjuhæstu skipstjórar og stýrimenn með yfir 3,2 milljónir í tekjur á mánuði að jafnaði.  

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er tekjuhæsti alþingismaðurinn, samkvæmt blaðinu en mánaðarlaun hennar hafa hækkað um 84 þúsund milli ára. Jón sagði að 180 ríkisstarfsmenn, sem getið er í tekjublaðinu, læknar, embættismenn, háskóla og embættismenn, væru með hærri laun en Jóhanna og þeim hefði fækkað milli ára.

Hörður með hæstu tekjur forstjóra

Samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar fékk Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hæstu laun forstjóra í fyrirtækjum á síðasta ári, ef miðað er við skattskyldar tekjur, 8781 þúsund krónur á mánuði. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma Energy, kom næstur með 7755 þúsund krónur og Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, er í þriðja sæti með 5697 krónur á mánuði.

Af starfsmönnum fjármálafyrirtækja var Jakob Már Ásmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri skilanefndar Landsbankans, tekjuhæstur með 7817 þúsund krónur á mánuði. Styrkár Hendriksson, forstöðumaður hjá MP banka, var með 4692 þúsund og Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, var með 3663 þúsund á mánuði.

Jóhannes Jónsson, Bónus, var tekjuhæstur í flokknum ýmsir menn í atvinnulífinu, með 13.937 þúsund króna mánaðartekjur. Anton Ásgrímur Kristinsson, vélfræðingur, var næstur með 12.533 þúsund og Magnús Jónasson, umboðsmaður, þriðji með 4897 þúsund á mánuði. 

Af næstráðendum í fyrirtækjum var  David John Kjos, framkvæmdastjóri hjá Norðuráli, tekjuhæstur með 8927 þúsund á mánuði. Valur Ragnarsson, lyfjafræðilegur framkvæmdastjóri hjá Actavis, var með 4014 þúsund og Stefán Jökull Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Actavis, með 3969 þúsund.

Sömu laun forsetans

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var með 1562 þúsund á mánuði á síðasta ári, sömu mánaðartekuur og árið áður. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fékk 1160 þúsund  krónur í mánaðartekjur og  Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var með 1139 þúsund krónur. 

Stefán Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, var tekjuhæstur sveitarstjórnamanna, samkvæmt tekjublaðinu, með 2571 þúsund krónur að jafnaði á mánuði. Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Ölfusi, kom næstur með 1776 þúsund og Eiríkur B. Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri var með 1648 þúsund. Tekjur Jóns Gnarr, borgarstjóra, voru 985 þúsund krónur.

Í flokki starfsmanna hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins var Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, tekjuhæstur með 2473 þúsund krónur á mánuði, Jón Steindór Valdimarsson, formaður samtakanna Sterkara Ísland, var með 2234 þúsund og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, með 1811 þúsund krónur. 

Björn tekjuhæstur

Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, var með hæstu tekjurnar í flokki embættismanna og forstjóra ríkisfyrirtækja, 1468 þúsund krónur á mánuði. Eyþór Þórðarson, starfsmaður Fiskistofu í Vestmannaeyjum, var með 1420 þúsund krónur í mánaðartekjur samkvæmt blaðinu og Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, var með 1258 þúsund.  

Bjarni Þór Óskarsson, hrl. hjá Lögheimtunni, var tekjuhæstur lögfræðinga með 2984 þúsund krónur á mánuði.  Gísli Baldur Garðarsson, hrl. hjá Cato, var með 2817 þúsund og Ólafur Garðarsson, hrl. hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur, var með 2695 þúsund.

Heimir Þorsteinsson, löggiltur endurskoðandi Actavis, var tekjuhæstur endurskoðenda með 2537 þúsund. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri KPMG, var með 1860 þúsund og Vignir Rafn Gíslason, stjórnarformaður PwC, með 1755 þúsund. 

Ragnar Magnús Traustason, tannlæknir, var tekjuhæstur heilbrigðisstarfsmanna með 3691 þúsund krónur á mánuði. Guðmundur Sigurðsson, heimilislæknir, Hólmavík, var með 2921 þúsund og Birna Jónsdóttir, röntgenlæknir, með 2778 þúsund.

Í flokki flugfólks var Jóhannes Helgason, flugstjóri hjá Icelandair, hæstur með 1794 þúsund. Hilmar Baldursson, flugrekstrarstjóri og flugstjóri hjá Icelandair, var með 1718 þúsund og Tómas Dagur Helgason, flugstjóri hjá Icelandair, með 1676 þúsund.

Í flokki verkfræðinga var Hörður Þórhallsson, hagverkfræðingur, tekjuhæstur með 3397 þúsund krónur á mánuði. Ari Stefánsson, vélaverkfræðingur var með 2036 þúsund og Sigurður Darri Skúlason, hugbúnaðarverkfræðingur, með 1991 þúsund. 

Cecil Haraldsson, Seyðisfirði, var tekjuhæstur presta með 971 þúsund krónur á mánuði. Vigfús Bjarni Albertsson, sérþjónustuprestur, Landspítala, var með 942 þúsund krónur og Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, var með 931 þúsund króna tekjur á mánuði. 

Í flokki auglýsingafólks var Ólafur  Þór Gylfason, framkvæmdastjóri MMR, tekjuhæstur með 1065 þúsund á mánuði. Hallur A. Baldursson, framkvæmdastjóri ENNEMM, var með 1061 þúsund og Jón Sæmundsson, framkvæmdastjóri og eigandi ENNEMM, var með 1017 þúsund.

Leikskáld með hæstu tekjurnar

Í flokki listamanna var Ólafur Haukur Símonarson, rithöfundur og leikskáld, tekjuhæstur með 1216 þúsund krónur samkvæmt tekjublaðinu, Jón Atli Jónasson, leikskáld, var með 1196 þúsund krónur og Finnbogi Pétursson, myndlistarmaður, með 1169 þúsund. 

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var tekjuhæstur í flokki íþróttamanna og þjálfara, með 1129 þúsund á mánuði. Leifur Sigfinnur Garðarsson, fyrrverandi þjálfari Víkings, var með 948 þúsund og Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, var með 920 þúsund. 

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, var tekjuhæstur fjölmiðlamanna, með 3757  þúsund á mánuði að jafnaði. Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans, var með 1585 þúsund og Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, var með 1377 þúsund samkvæmt úttekt tekjublaðsins.  

Í flokki skólamanna var Kristján Jóhannsson, lektor HÍ og stjórnarformaður Icepharma, með 2460 þúsund í tekjur á mánuði. Róbert Ragnar Spanó, forseti lagadeildar Háskóla ÍSlands, var með 1963 þúsund og Ragnar Árnason, prófessor í viðskiptafræði við HÍ, með 1676 þúsund.    

Í flokki sjómanna og útgerðarmanna var Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Seltjarnarnesi, tekjuhæstur með 3675 þúsund króna tekjur. Sigurbergur Hauksson, skipstjóri á Berki, Neskaupstað, með 3513 þúsund og Sturla Þórðarson, skipstjóri á Beiti, Neskaupstað, með 3499 þúsund.   

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
FÆST Á AÐEINS 10.000. UPPL. Í SÍMA. 8562418 Í DAG OG NÆSTU DAGA. ...
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum. Hann er eyrnamerktur o...
Subaru Forester lækkað verð 290þús.stgr.
Sjálfsk. 4x4 í fínu standi. Ek.211 þús.km. Verð 420.000,- S. 896-0853....
OPEL ASTRA ENJOY
Opel Astra Enjoy Nýskr. 4/2007, ekinn 93 þ. km, bensín, 5 g...
 
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...