Íhuga skaðabótamál vegna Bakkaflatar

Flúðasiglning stækka

Flúðasiglning Í einkaeigu

Aðstandendur Bátafjörs Bakkaflatar harma að keppinautar þeirra geti notað nafn Bakkaflatar í leitarskilyrðum á vefnum ja.is. Segja þeir að ef orðið Bakkaflöt sé slegið inn kemur upp nafn helsta keppinautar þeirra efst.

Líkt og greint var frá á mbl.is í síðustu viku var Arctic Rafting gert að afskrá heitið Bakkaflöt sem leitarorð úr símaskránni ja.is eftir að ferðaþjónustan Bakkaflöt leitaði til Neytendastofu vegna málsins.

„Ferðaþjónustan Bakkaflöt leitaði til Neytendastofu með kvörtun yfir því að þegar heitið Bakkflöt er slegið inn hjá símaskránni ja.is komi upp bæði Bakkaflöt ferðaþjónusta Skagafirði og Arctic Rafting, auk ýmissa upplýsinga um hvernig megi ná sambandi við fyrirtækin. Ferðaþjónustan Bakkaflöt og Arctic Rafting eru keppinautar á sviði flúðasiglinga í Skagafirði.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að skráning Arctic Rafting á heitinu Bakkaflöt sem kennileiti í símaskránni ja.is skapi verulega ruglingshættu milli fyrirtækjanna. Bakkaflöt er heiti á lögbýli þar sem Ferðaþjónustan Bakkaflöt hefur starfsemi sína og þykir Neytendastofu óeðlilegt að Arctic Rafting sem hefur aðsetur annars staðar kenni sig við lögbýli það sem keppinautur hefur aðsetur. Var Arctic Rafting gert að afskrá heitið Bakkaflöt sem leitarorð úr símaskránni ja.is," segir á vef Neytendastofu.

Misnotkun staðið yfir í meira en eitt ár

Í tilkynningu frá ferðaþjónustunni Bakkaflöt kemur fram að á sama tíma og aðstandendur Bátafjörs Bakkaflatar gleðjast þess að Neytendastofa úrskurði sér í hag sárni þeim að misnotkun sem þessi sé möguleg á markaðnum.

„Það er að samkeppnisaðila sé gert kleyft að nota nafn okkar í leitarskilyrðum í veflægri símaskrá ja.is, af því leiddi að ef slegið er inn orðið Bakkaflöt á ja.is birtist nafn samkeppnisaðila efst.

Misnotkun þessi hefur staðið yfir síðan í maí 2010 og höfum við fengið marga viðskiptavini, jafnvel heilu hópana, sem stóðu í þeirri trú að vera að fara í ferð hjá okkur á Bakkaflöt, en voru þá búnir að borga  ferðina hjá samkeppnisaðila okkar. Við fundum fyrir fækkun á ferðum í rafting síðastliðið sumar og einnig  það sem af er þessu sumri, þykir okkur því nokkuð ljóst að skaðinn sé greinilegur.

Árið 2004 þá lendum við í svipuðu máli en þáverandi samkeppnisaðili okkar, Ævintýraferðir, notaði orðið „Bátafjör í Skagafirði" í bæklingum sem þeir gáfu út. Nokkrum árum áður byrjuðum við að markaðssetja okkur sem Bátafjör Bakkaflöt og var greinilegt að villa átti fyrir fólki með þessu. Á þessum tíma mátti einnig sjá áhrif á sölu og fannst okkur þá einnig okkar mikla vinna við að vekja athygli á starfsemi okkar fara að hluta til í að styrkja stöðu samkeppnisaðila. Í því máli var einnig kvartað til Samkeppnisstofnunar og þurftu Ævintýraferðir að taka alla bæklinga úr umferð.

Ferðaþjónustan Bakkaflöt hefur starfað frá 1987 í Lýtingsstaðarhreppi í Skagafirði. Frá árinu 1994 hefur verið gert út river rafting frá Bakkaflöt. Við höfum náð að þróa öryggisbúnað og mannskap eins og best verður á kosið.  Boðið er upp á fjölda skemmtilegra ferða og höfum við fjölbreytt vöruúrval á þessum markaði, svo sem gistingu, tjaldstæði, wipeout garðinn sem eini sinnar tegundar á landinu.

Lítum við á úrskurð Neytendastofu sem stóran áfanga í málinu sem þegar hefur verið kostnaðarsamt og tekið mikinn og dýrmætan tíma frá aðstandendum Bátafjörs Bakkaflatar sé ekki litið til þess tekjutaps sem af þessu máli hefur hlotist. Þar sem við á Bakkaflöt höfum starfað í  24 ár þykir okkur miður að þurfa oft á tíðum að verja nafnið okkar fyrir því að samkeppnisaðilinn noti það í sinni markaðssetningu rétt eins og Arctic Rafting hefur nú gert í rúmt ár.  Nú á næstu dögum munum við fara yfir úrskurðinn með lögfræðingi okkar og kanna næstu skref en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort haldið verður áfram með málið í skaðabótamál," segir í tilkynningu frá ferðaþjónustunni Bakkaflöt.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BLACKLION SUMARDEKK
Blacklion sumardekk - pakkatilboð 195/65 R 15 kr. 52.900. 205/55 R 16 kr. 63...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
 
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...