Fólk á ferð og flugi
Þessar stúlkur voru á leið á Þjóðhátíð er ljósmyndari Morgunblaðsins leit við í Landeyjahöfn mbl.is/Ómar Óskarsson
Þrátt fyrir rigningu í Vestmannaeyjum er búist við fjölmenni þangað í dag en Herjólfur, flugfélagið Ernir og Flugfélag Íslands ferja fólk út í Eyjar. Herjólfur siglir með um 9.500 manns til Vestmannaeyja frá miðvikudegi til sunnudags, samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjaferjunni.
Veðrið er best á Austurlandi og er núna yfir 20 stiga hiti á Egilsstöðum þar sem unglingalandsmót UMFÍ er haldið. Von er á átta til tíu þúsund manns á Egilsstaði um helgina vegna mótsins.
Á Akureyri mættu um þrjú þúsund manns á setningarhátíð Einnar með öllu í gærkvöldi og eiga aðstandendur hátíðarinnar von á því að hátíðin verði fjölmennari í ár en oft áður.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að næsta sólarhringinn er spáð sunnan 5-13 og víða rigning, en skýjað með köflum og þurrt að mestu á NA- og A-landi. Fremur hæg suðaustlæg átt í nótt og á morgun og væta af og til, einkum suðaustanlands. Hiti 12 til 20 stig í dag, hlýjast fyrir austan, en heldur svalara á morgun.
Á sunnudag:
Austlæg átt 5-10 m/s, en 8-13 NV-til og með SA-
ströndinni. Skýjað með köflum og þurrt að kalla á N- og V-landi, annars
dálítil súld eða rigning. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á V-landi.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna):
Austan og norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 á SA-til og NV-lands. Rigning
með köflum eða skúrir, en úrkomulítið um landið vestanvert. Hiti
breytist lítið.
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir austlæga átt með vætu víða um land og milt veður.
Aukið eftirlit lögreglu
Ríkislögreglustjóri í samvinnu við lögregluembætti landsins og tollgæsluna stendur fyrir hertu eftirliti gegn sölu, meðferð og neyslu ólöglegra fíkniefna um verslunarmannahelgina. Eftirlitið er til viðbótar við aðra löggæslu og er ætlað að efla og styrkja eftirlit og afskipti tengd fíkniefnum á þeim stöðum sem þörf er talin á. Tvö teymi rannsóknarlögreglumanna og tollvarða munu starfa á vegum ríkislögreglustjóra, lögregluembættunum til aðstoðar, segir á vef lögreglunnar.
Enn fremur mun ríkislögreglustjóri og Landhelgisgæslan, í samvinnu við lögregluembættin, vera í samstarfi um umferðareftirlit úr lofti með þyrlu en flogið verður yfir helstu þjóðvegum landsins. Tækjabúnaður verður meðferðis til eftirlits með hraðakstri ökutækja.
Þá munu lögreglumenn úr sérsveit ríkislögreglustjóra verða með lögregluliðunum í Vestmannaeyjum og á Akureyri um verslunarmannahelgina.






































