Forsetinn sendir Annie Mist heillaóskir

Annie Mist tekur við verðlaununum. Til vinstri er Kristan Clever …
Annie Mist tekur við verðlaununum. Til vinstri er Kristan Clever og til hægri Rebecca Voigt, sem varð þriðja.

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í dag sent Annie Mist Þórisdóttur hamingjuóskir með sigur hennar í Heimsleikum í crossfit.

Í kveðjunni áréttaði forseti að hún hefði sýnt ungu fólki hve langt væri hægt að ná með aga, þjálfun og einbeitingu. Mikilvægt væri að æska landsins ætti slíkar fyrirmyndir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert