Þræla sér út í Noregi

Fjöldi umsókna íslenskra hjúkrunarfræðinga um leyfi til starfa í Noregi hefur sautjánfaldast frá því árið 2008. Ef marka má viðtal Morgunblaðsins við nokkra hjúkrunarfræðinga má ætla að þessi ásókn sé ekki að fara að minnka.

„Á slysó þar sem ég er að vinna hafa allir hjúkrunarfræðingarnir farið í svona stutta vinnutúra og þénað kannski um hálfa milljón á 7 til 10 dögum,“ segir Lilja Bolladóttir hjúkrunarfræðingur sem hefur sótt um leyfi til starfa í Noregi. Ofan á launin er flugið borgað undir hjúkrunarfræðingana og þeim útveguð gistiaðstaða sem þó er sjaldnast mjög vegleg.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag játar Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður félags hjúkrunarfræðinga, að mikið sé um þetta en segir erfitt að hafa yfirsýn yfir málið. Hún vildi þó bæta við að þótt launin væru vissulega hærri væri það ekki aðalmálið. „Ég hef spurt þau sem hafa þénað svona mikið í stuttum ferðum og þá hefur komið í ljós að þau hafa verið að vinna tvöfaldar vaktir dag eftir dag, jafnvel alla daga vinnunnar. Ef þau fengju að vinna svona hér á landi myndu þau fá svipuð laun, kannski aðeins lægri en ekki mikið. Það má líkja þessu við vertíð; þú ferð ekki í ræktina eða á kóræfingu, þú bara vinnur og vinnur og svo ferðu að sofa á beddanum. Slíkt gerir fólk ekki til langs tíma litið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert