Tvennt stendur upp úr
Formaður Þjóðhátíðarnefndar, Páll Scheving Ingvarsson, segir tvennt standa upp úr að lokinni Þjóðhátíð í ár, annað gott en hitt slæmt.
Í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér kemur fram að framkvæmd 14.000 manna hátíðar hafi gengið mjög vel þrátt fyrir erfið veðurskilyrði. Glæsilegri dagskrá sé vel skilað í nýrri umgjörð, það sé jákvæða hliðin.
„Sú neikvæða er að meðal gesta á hátíðinni leynast fársjúkir einstaklingar. Einstaklingar sem gera fólskulega árás á saklausa gesti. Árás sem opnar djúpt sár og skilur eftir ljótt ör á sálinni. Ófyrirgefanlegt. Þolendum og aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð.
Milli átta og níuhundruð Vestmannaeyingar auk ríflega tvöhundruð einstaklinga af fastalandinu komu að undirbúningi og framkvæmd Þjóðhátíðar 2011.
Ég vil nota þetta tækifæri og þakka öllu þessu góða fólki fyrir frábært starf. Og minna á það í leiðinni að útilokað er að færa ábyrgð þeirra voðaverka sem framin voru í Herjólfsdal á heiðarlega, harðduglega og heilbrigða starfsmenn hátíðarinnar. Gerandinn skal bera ábyrgðina. Umræða og heilbrigð gagnrýni hjálpar og á fullan rétt á sér.
Það er undirrituðum hins vegar þungbært að sitja undir þeirri gagnrýni að hann stjórnist af gróðasjónarmiðum, styðji nauðgunarmenningu og sé skjól fyrir kynferðisbrotamenn, jafnvel framsett af fagaðilum.
Vanþekkingin verður ekki betur auglýst. Í þessu sambandi vil ég minna alla Íslendinga á að Þjóðhátíð Vestmannaeyja er fjölskylduhátíð samfélagsins sem haldin hefur verið samfleytt frá árinu 1874. Eyjamenn leiða dætur sínar í Herjólfsdal. Þeir eru ekki að leiða þær í gin ljónsins. Allt kapp er lagt á að tryggja öryggi gesta. Öryggisþátturinn er í stöðugri þróun og endurskoðun.
Að halda því fram Eyjamenn velji til að stjórna hátíðinni, menn sem stjórnist af gróðasjónarmiðum, styðji nauðgunarmenningu og eru skjól fyrir kynferðisbrotamenn, er óráðshjal. Það er niðurlægjandi fyrir Vestmannaeyinga að sitja undir jafn ömurlegu froðusnakki.
Virðingarfyllst
Páll Scheving Ingvarsson Formaður Þjóðhátíðarnefndar"
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Jónsson Ömurlegar árásir á Eyjamenn. -
Tryggvi Marteinsson 5. ágúst 2011 - Líðum ekki ofbeldi. -
Jón Ingi Cæsarsson Að haga orðum sínum af skynsemi væri betra.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. apríl 2011, Innlent Miðaverð á þjóðhátíð hækkar
- Laugardagur, 30. júlí 2011, Innlent Ekkert rigndi í Eyjum í dag
- Laugardagur, 31. júlí 2010, Innlent „Stærsta föstudagsbrekkan“
- Föstudagur, 29. júlí 2011, Innlent Regnhlífar koma að góðum notum
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Sprengjuárásir á Þjóðhátíð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































