Gegn mögulegum skattahækkunum

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mbl.is/Árni Sæberg

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir tíma skattahækkana í landinu einfaldlega liðinn. Áður hafði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fullyrt að rætt sé innan ríkisstjórnarinnar um að hækka virðisaukaskatt á matvæli til að vinna á hallanum á rekstri ríkissjóðs.

Vilhjálmur segir útspil ríkisstjórnar í raun ekki koma á óvart. „Við vitum að þegar ríkissjóður er rekinn með þessum halla og á meðan ekki næst að ná hagvextinum upp í fjögur til fimm prósent á ári, þá verður þetta viðvarandi viðfangsefni,“ segir Vilhjálmur og bætir við að Samtök atvinnulífsins séu mjög andsnúin skattahækkunum.

„Við teljum að ríkið þurfi að draga saman seglin og skera niður því þegar til lengri tíma er litið þarf ríkið að stilla sig af miðað við umfang hagkerfisins,“ segir hann og bætir við að vilji ríkisstjórnin ekki koma fjárfestingum, atvinnulífinu og vegaframkvæmdum af stað þá hljóti að vera rökrétt að stilla umfang ríkisins af í stað skattahækkana.

„Það bitnar allt harkalega á heimilunum og fyrirtækjunum í landinu á meðan það er nánast stefna að það megi ekki auka hagvöxtinn.“

Vilhjálmur segir ljóst að Samtök atvinnulífsins munu standa gegn frekari skattahækkunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert