„Sambærileg verðskrá“

Bláa lónið er vinsæll áfangastaður, bæði hjá Íslendingum og útlendingum. Þó vilja margir meina að það sé of dýrt að baða sig í notalegu lóninu, en það kostar 4800 krónur eða 30 evrur.

Magnea Guðmundsdóttir, fjölmiðlafulltrúi Bláa lónsins, segir verðskrána vera sambærilega verðskrám á öðrum Spa-stöðum í Reykjavík, fólk setji ekki fyrir sig verðlagið og sjáist það best á því að á fyrstu sjö mánuðum ársins var heildarfjöldi gesta 268.400.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert