Deilur í Borgarahreyfingunni
Borgarahreyfingin hefur sagt Guðmundi Andra Skúlasyni, talsmanni sínum og verkefnisstjóra, upp störfum. Til stendur að kæra hann fyrir fjárdrátt. Guðmundur segir engan grundvöll vera fyrir þessum ásökunum og ætlar að kæra stjórnarmenn Borgarahreyfingarinnar fyrir meiðyrði dragi þeir ekki ásakanirnar til baka.
Guðmundur Andri hefur starfað bæði sem verkefnisstjóri og talsmaður Borgarahreyfingarinnar. Á síðasta stjórnarfundi hreyfingarinnar var ákveðið að segja Guðmundi Andra upp störfum. Hann hefur verið beðinn að gefa skýringar á rúmlega einnar og hálfrar milljónar króna reikningi frá Samtökum lánþega auk annarra millifærslna, en hann er jafnframt talsmaður Samtaka lánþega.
Í yfirlýsingu segir Guðmundur Andri að engin gögn hafi verið lögð til grundvallar þessum ásökunum, heldur byggist þær á órökstuddum upphrópunum formanns Borgarahreyfingarinnar, Þórdísar B. Sigurþórsdóttur.
Hann segir að umræddar færslur hafi verið gerðar með samþykki stjórnarinnar og þar að auki hafi hann ekki persónulega séð um bókhald flokksins heldur hafi viðurkennt bókhaldsfyrirtæki séð um það.
„Um leið og formaður hóf vegferð sína gegn mér með tilhæfulausum og órökstuddum ásökunum bauð ég stjórn strax að fá óháðan aðila til að fara yfir öll mín verk. Því var samstundis hafnað af stjórn,“ segir Guðmundur Andri í yfirlýsingu sinni.
„Að saka mig um fjárdrátt, bókhaldsóreiðu og óheimilan aðgang að reikningum er (...) vítaverð tilraun til mannorðsmorðs. Þeim aðilum sem að þeirri aðför standa, Þórdísi B. Sigurþórsdóttur, formanni stjórnar, Þorsteini Guðmundssyni, ritara stjórnar, og Guðmundi Karli Þorleifssyni stjórnarmanni, hefur því, ásamt Borgarahreyfingunni sem lögaðila, verið gefinn 10 daga frestur til að draga til baka allar ásakanir gegn mér og biðjast á opinberum vettvangi afsökunar á dómgreindarbresti sínum og offorsi. Slíkt yrði af minni hálfu án eftirmála, enda er ég maður sátta.“
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. apríl 2012, Innlent Borgarahreyfingin sýknuð
- Miðvikudagur, 27. júlí 2011, Innlent Deilur innan Borgarahreyfingarinnar
- Föstudagur, 11. nóvember 2011, Innlent Hreyfingar ræða samstarf
- Miðvikudagur, 28. september 2011, Innlent Upplausn innan Borgarahreyfingarinnar
- Þriðjudagur, 30. ágúst 2011, Innlent Jóhanna vildi ekki afskriftir
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































