Suðurnesjamenn vilja fangelsi

Rockville svæðið á Suðurnesjum.
Rockville svæðið á Suðurnesjum. mbl.is/RAX

Bæjarráð Sandgerðisbæjar bendir á að svokallað Rockvillesvæði norðan Keflavíkurflugvallar sé góður kostur fyrir byggingu nýs fangelsis og að þar sé hægt að hefja framkvæmdir nú þegar. Í þessu sambandi minnir bæjarráð á loforð ríkisstjórnarinnar um átak í atvinnumálum á Suðurnesjum, en atvinnuleysi er þar mest á landinu.

Þetta var rætt á fundi bæjarráðsins í gær.

Í tilkynningu frá ráðinu segir að í bókun bæjarráðs sé ítrekuð  fyrri afstaða bæjaryfirvalda um samstarf við innanríkisráðuneyti og fangelsismálayfirvöld um byggingu fangelsisins.

„Það er því löngu orðið tímabært  að grípa til raunverulegra aðgerða til að snúa þessu ófremdarástandi við. Bygging fangelsis og rekstur þess myndi skapa fjölda starfa á þessu svæði til skemmri og lengri tíma,“ segir í tilkynningunni.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert