Kostnaður vegna blóðþrýstingslyfja lækkar
Heildarkostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna blóðþrýstingslækkandi lyfja lækkaði um 60% frá árinu 2009-2010, úr 685 milljónum króna í 277 milljónir.
Meginástæðan er breytingar á greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði sem stuðla að notkun hagkvæmustu lyfjanna. Þetta kemur fram í nýjasta fréttablaði lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands.
Hinn 1. október 2009 tók gildi reglugerð sem kveður á um að sjúkratryggingar taki einungis þátt í greiðslu kostnaðar af hagkvæmustu pakkningum blóðþrýstingslækkandi lyfja í flokknum ATC C09.
Markmiðið var að beina lyfjaávísunum lækna fyrir sjúklinga að hagkvæmustu lyfjunum þegar verkun þeirra er sambærileg og verkun dýrari lyfja. Ef meðferð með þessum lyfjum er talin ófullnægjandi eða ef aukaverkanir koma fram við notkun þeirra getur læknir sótt um lyfjaskírteini sem tryggir sjúklingnum niðurgreiðslu vegna dýrara lyfs sem honum er nauðsynlegt.
Auk þess sem notkun hagkvæmari lyfja hefur aukist hafa breytingarnar einnig leitt til þess að verð á mörgum blóðþrýstingslækkandi lyfjum hefur lækkað um allt að 70-75%.
Sjúklingum sem þurftu á blóðþrýstingslækkandi lyfjum að halda fjölgaði um 1% frá árinu 2009-2010 en fjöldi dagskammta (DDD) dróst saman um 1,2% á sama tímabili, segir á vef velferðarráðuneytisins.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. febrúar 2012, Innlent Lyf lækka í verði
- Sunnudagur, 18. desember 2011, Innlent Mikill sparnaður í þunglyndislyfjum
- Þriðjudagur, 5. apríl 2011, Innlent Lyfjakostnaður lækkar
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Kostnaður vegna lyfja við ADHD þrefaldast
- Laugardagur, 17. desember 2011, Innlent Útgjöld vegna tauga- og geðlyfja til barna vaxa
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































