Leigubílarnir þriðjungi ódýrari
Hver ferð með Ferðaþjónustu fatlaðra kostar borgina um þriðjungi meira en Ferðaþjónusta blindra. Sverrir Vilhelmsson
Hver ferð með Ferðaþjónustu blindra í Reykjavík er um þriðjungi ódýrari fyrir borgina en ferð með Ferðaþjónustu fatlaðra. Þetta segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins, en einn félagsmanna þess hefur höfðað mál gegn Mosfellsbæ fyrir að vanrækja lögbundnar skyldur gagnvart sér.
Á grein á heimasíðu Blindrafélagsins ber Kristinn saman kostnað Reykjavíkurborgar við Ferðaþjónustu blindra annars vegar og Ferðaþjónustu fatlaðra hins vegar. Þar kemur fram að kostnaður borgarinnar er um 800 krónum meiri á hverja ferð hjá Ferðaþjónustu fatlaðra.
Hjá borginni eru blindum tryggðar ferðir með leigubílum á strætisvagnafargjaldi en sérútbúnir hópferðarbílar sem geta tekið við hjólastólum sjá um þjónustu fyrir fatlaða.
„Samkvæmt þessum tölum sem við höfum frá Reykjavíkurborg er hver ferð í Ferðaþjónustu blindra um það bil þriðjungi ódýrari fyrir borgina en hver ferð í Ferðaþjónustu fatlaðra. Þjónustustigið í Ferðaþjónustu blindra er miklu hærra og sveigjanlegra. Hún getur mætt persónulegum þörfum hvers og eins sem hin gerir ekki,“ segir Kristinn í samtali við Mbl.is.
Hann segir deiluna við Mosfellsbæ og Kópavog eiga sér margra ára sögu. Blindrafélagið hafi ítrekað bent á þetta en það hafi ekki fengið einu sinni viðræður til þess að útskýra muninn á þessum valkostum.
„Lagaskyldan varðandi þessa þjónustu er mjög skýr. Þetta er lögbundin þjónusta sem sveitarfélagið á að veita. Markmiðið með henni á að vera að gera þeim sem eru fatlaðir og geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur kleift að stunda atvinnu, nám og tómstundir. Þegar við erum með einstaklinga sem þurfa að komast ferða sinna með stuttum fyrirvara eða á þeim tímum þegar Ferðaþjónusta fatlaðra er ekki í gangi uppfyllir það úrræði ekki þetta markmið,“ segir Kristinn.
Kostnaðarsamanburðurinn á heimasíðu Blindrafélagsins.
Fyrri fréttir Mbl.is:
Bloggað um fréttina
-
Kristinn Halldór Einarsson Meinað um ódýrari og betri þjónustukostinn en neydd í þann ... -
Haraldur Haraldsson Ferðirnar þriðjungi ódýrari/// Finnst þetta ekki vera deiluefni bara þras ...
Innlent »
- Stöðvaður eftir ofsaakstur
- Alsírsku drengirnir áfrýja
- Listflug við Reykjavíkurflugvöll
- Ákærður fyrir að stinga mann
- Landsbjörg leitar enn að Ligitu
- Klára kvótamálin í vikunni
- Hreint hjarta besta myndin
- Mætti innbrotsþjófum í forstofunni
- Veðurblíða víða um land
- Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af
- Kosningamiðstöð Þóru opnuð
- Ferry heillaði í Hörpu
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. október 2010, Innlent Blindir Kópavogsbúar í mál
- Föstudagur, 29. október 2010, Innlent Kópavogsbær vísar erindi Blindrafélagsins á bug
- Fimmtudagur, 28. október 2010, Innlent Sækja rétt til ferðaþjónustu
- Miðvikudagur, 10. ágúst 2011, Innlent Stefnir Mosfellsbæ
- Sunnudagur, 21. nóvember 2010, Innlent Blindir ósáttir við eftirlit
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































