Um 90% makríls fryst

Makríll.
Makríll.

Um níutíu prósent af þeim makríl sem er veiddur við Íslandsstrendur nú í sumar virðast fara til manneldis. Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á að sem allra mest af þeim makrílafla sem veiðist hér við land fari til manneldis þannig að aflinn verði sem allra verðmætastur.

Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir, að í samtölum við forsvarsmenn stórra vinnslustöðva í gær hafi komið fram, að allt liti út fyrir að það hlutfall makríls sem færi í frystingu ykist úr 60% frá því í fyrra í hátt í 90% í ár. Til samanburðar má nefna að 2009 voru um 80% aflans brædd.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert