Undrast fréttaflutning af flótta

Ögmundur Jónasson stækka

Ögmundur Jónasson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra undrast fréttaflutning einhverra fjölmiðla í gær af meintum flótta ráðherra úr stjórnarráðsbyggingunni eftir ríkisstjórnarfund í gær.

Á vef sínum skrifar Ögmundur að í fréttafrásögnum hafi verið látið að því liggja að hann hafi verið á flótta undan fjölmiðlum!

„Þetta gripu síðan á lofti skríbentar á vefmiðlum á höttum eftir einhverju verulega bitastæðu úr þjóðmálaumræðunni.

Fangelsismálin eru ofarlega á baugi og lái ég ekki fjölmiðlum að búast við fréttum af þeim eftir hvern ríkisstjórnarfund sem haldinn er enda ríkisstjórnin búin að lýsa því yfir að málið verði frágengið í þessum mánuði. Þarna eru fjölmiðlar að sinna eðlilegum skyldum sínum. Ekki reyndist málið komið á það stig í gær að það yrði afgreitt. Hlaup mín af ríkisstjórnarfundi voru vegna þess að fundurinn hafði dregist á langinn og ég orðinn of seinn annað! Hélt ég sannast sagna að fréttamenn þekktu mig af öðru en að forðast að standa fyrir mínu máli.

Þetta verður mér hins vegar umhugsunarefni um fréttaumfjöllun í landinu.

Þannig reifar Ríkissjónvarpið í gærkvöldi mismunandi áherslur innan ríkisstjórnarinnar vegna þessa máls og kemst að undarlegum niðurstöðum (eða væri nær að segja að tuggið hafi verið upp umhugsunarlaust):
1) Ágreiningur sé um það hvort einkaaðilar reisi fangelsið. Um þetta hefur aldrei verið ágreiningur. Fangelsið fer í útboð og fyrirtæki á markaði teikna (grunnhönnun liggur þegar fyrir) og reisa bygginguna.
2) Ágreiningur sé um það hvort skattgreiðendur borgi brúsann, sem gæti leitt til skattahækkana eða niðurskurðar. Enginn ágreiningur er um það að skattgreiðendur borgi fangelsið. Að sjálfsögðu munu þeir borga hverja einustu krónu. Eða halda menn að í fangelsi borgi fangar uppihald og húsnæði; eða að einkafyrirtæki ætli að gefa ríkinu húsið og standa straum af kostnaði án endurgjalds?

Um það hefur hins vegar verið deilt hvort heppilegra sé að ríkið reisi fangelsi milliliðalaust eða að einkaaðili reisi það með eigin lántökum og leigi ríkinu síðan afnot af því, skrifar Ögmundur hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi

06:08 Umferðaróhapp varð laust eftir miðnætti á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Grunur leikur á um ölvun við akstur. Meira »
Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
Sjálfskipt Nissan Almera 2001
Til sölu Nissan Almera Luxury árg. 2001, ekin 167 þús., skoðaður 2013, stgr.verð...
15,2 fm bjálkahús - Verð kr. 725.000
Húsið er úr 44mm bjálkum. Húsið er ósamsett og til afhendingar strax. Áætlaður...
TOYOTA COROLLA H/B
Toyota Corolla H/B Sol, 01/2004, ekinn 84 þús. Ssk., vindskeið,...
 
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...