Framkvæmd verkfalls í félagsdóm

Stutt er í að verkfall skellur á.
Stutt er í að verkfall skellur á. mbl.is/Árni Sæberg

Þar sem enn er ágreiningur um framkvæmd verkfallsins mun samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga, ef til verkfalls kemur, vísa málinu til úrskurðar félagsdóms. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá nefndinni.

Nefndin segir að mikilvægt hafi verið talið að ná samkomulagi við Félag leikskólakennara um framkvæmdina til að koma í veg fyrir átök við leikskóla ef til verkfalls kemur. Viðræður hafi ekki skilað árangri. „Félag leikskólakennara hefur lýst því yfir að það muni beita öllum tiltækum ráðum til að knýja á um að farið verði eftir þeim einhliða viðmiðunarreglum sem stjórn félagsins hefur sent til stjórnenda leikskóla komi til verkfalls. Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga  hefur mótmælt þeim reglum og því að stéttarfélag gefi stjórnendum  sveitarfélaga bein fyrirmæli.“

Þá beinir samninganefndin því til sveitarfélaga að þau  skipuleggi starfsemi leikskóla þannig að forðast megi  átök við verkfallsverði Félags leikskólakennara.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert