Allir komnir með gistingu
Búið er að tryggja 125 farþegum af þeim 211 sem ekki komust með flugvél Iceland Express frá Alicante í gærkvöldi gistingu á tveimur hótelum í borginni.
Aðrir farþegar gátu horfið til íbúða á þeirra eigin vegum. Verið er að vinna í að leigja flugvél til að koma hópnum heim til Íslands. Iceland Express sér farþegum fyrir gistingu og fæði á meðan beðið er heimferðarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Iceland Express.
Við lendingu Boeing 757-200 flugvélar Iceland Express í Alicante í gærkvöldi gaf tækjabúnaður flugvélarinnar til kynna að skoða þyrfti annan hreyfil hennar. Flugvélin átti að fara í loftið kl. 23:10 að íslenskum tíma., en af öryggisástæðum var fluginu frestað.
„Starfsmaður Iceland Express var á flugvellinum og miðlaði upplýsingum til farþega jafnóðum og þær lágu fyrir og áhafnarmeðlimir gerðu það einnig. Búið var að loka nánast öllum veitingastöðum á flugvellinum en engu að síður tókst að fá veitingar fyrir allan hópinn. Mjög erfitt er að fá hótel fyrir svo stóran hóp á Alicante þessa dagana, bæði vegna þess að þar er nú háannatími ferðaþjónustunnar og að auki fara fram tveir stórir viðburðir á svæðinu um helgina.
Fljótlega tókst starfsfólki Iceland Express að finna nokkur hótelherbergi og naut fólk með börn forgangs sem og fatlaðir einstaklingar í hópnum. Barnafjölskyldur voru komnar á hótel rúmri klukkustund eftir að fyrir lá að flugvélin færi ekki til Íslands í gærkvöldi. Þá tókst að finna sérútbúinn bíl fyrir stóra hjólastóla til að flytja þá sem fatlaðir eru á hótel.
Hópur útskriftarnema frá Menntaskólanum á Ísafirði, um sextíu manns, þurfti að dvelja á flugvellinum til um klukkan sjö í morgun, en þá tókst að finna hótel fyrir hópinn. Fólkið fékk veitingar á kostnað Iceland Express á meðan það beið.
Þá ræddi upplýsingafulltrúi Iceland Express við tvo einstaklinga úr hópnum í nótt og gaf þeim allar upplýsingar sem lágu fyrir og bað um að upplýsingunum yrði komið áfram til annarra í hópnum. Einnig fengu þessir aðilar uppgefið símanúmer upplýsingafulltrúans sem þeim var sagt að velkomið væri að hringja í ef á þyrfti að halda.
Á þessari stundu liggur ekki fyrir hvenær leiguflugvél fæst til að flytja fólkið heim, en upplýsingar um gang mála verða gefnar jafnóðum og þær liggja fyrir," segir í tilkynningu Iceland Express.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 19. ágúst 2011, Innlent Flugi frestað af öryggisástæðum
- Föstudagur, 19. ágúst 2011, Innlent Við gerðum okkar besta
- Föstudagur, 21. október 2011, Innlent Farþegar komast heim í kvöld
- Sunnudagur, 25. september 2011, Innlent Töf á brottför flugvélar IE
- Laugardagur, 17. september 2011, Innlent Neyðarlenti vegna veikinda
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































