Til nokkurs þroska á eigin forsendum
sbs@mbl.is
Vingjarnleg samskipti, vellíðan, virðing og gleði. Þetta eru gildin sem Ólöf Sigurðardóttir leggur áherslu á í skólastarfi. Hún er þessa dagana að taka við starfi skólastjóra Flataskóla í Garðabæ, en þar eru 260 nemendur í 1. til 7. bekk.
Upphaf skólaársins er alltaf tilhlökkunarefni. Ég er alltaf voða spennt að byrja og fyllist mikilli orku þegar ágúst gengur í garð og tilhugsunin um nýtt skólaár er alltaf góð. Núna er ég orðin verulega spennt að hitta og kynnast starfsfólkinu í Flataskóla og ekki síður börnunum – sem eru svo frjó, heiðarleg og full af atorku. Er það ekki einmitt það sem við öll viljum vera?“ segir Ólöf Sigurðardóttir sem þessa dagana er að taka við starfi skólastjóra Flataskóla í Garðabæ.
„Flataskóla hefur jafnan fylgt góður andi og metnaður til árangurs nemenda. Jákvætt samstarf við heimilin í anda fyrsta skólastjóra hans sem hvatti mjög til þess og hafði skilning á þeirri samfellu sem er börnum nauðsynleg til að ná góðum árangri í starfi og leik,“ segir Ólöf.
„Skólabragurinn endurspeglar virðingu og framkomu þeirra sem starfa og nema í skólanum hverju sinni. Skólastjóri hefur mikil áhrif á þróun skólabragsins í sínu umhverfi. Með breytni sinni getur hann haft mikil áhrif. Ég sjálf legg mikla áherslu á vingjarnleg samskipti, vellíðan, virðingu, gleði, jákvæðni og metnað allra innan skólasamfélagsins. Með þetta að leiðarljósi getur skólastjóri ásamt starfsfólkinu haft mikil áhrif á starfið. Fyrstu dagarnir á haustin eru ávallt annasamir, bæði fyrir starfsfólk og ekki síður nemendur. Skólafólkið er að skipuleggja viðfangsefni vetrarins um leið og verið er að kynnast nýjum nemendum sem margir hverjir eru að fóta sig í nýjum og breyttum aðstæðum. Að sama skapi er þetta voðalega skemmtilegt. Haustið er tími eftirvæntingar í skólanum.“
Fyrirmyndir og áhrifavaldar
Ólöf hefur lengi starfað með börnum og unglingum og byrjaði að kenna fyrir nítján árum. Hún segir það í raun hafa komið af sjálfu sér og verið beint og óbeint framhald af því sem hún tók sér fyrir hendur á æskuárum, þá sem nemandi í Flataskóla.„Mér fannst óskaplega gaman í skólanum allt frá fyrsta degi. Ekki spillti fyrir að fyrsti kennarinn minn, Margrét Thorlacius, var einstök kona og hafði mikil áhrif á mig. Önnur kennslukona hafði líka mikil áhrif á mig, Olga Snorradóttir sem kenndi mér þegar ég var orðin aðeins eldri. Olga var alltaf sanngjörn og vingjarnleg auk þess sem hún leyfði okkur krökkunum í bekknum að taka þátt í ýmsum ákvörðunum. Svo skemmtilega vill til að Olga vinnur enn við skólann þannig að aftur fæ ég að njóta þess að læra af og vinna með henni. Það hvað gömlu kennararnir mínir höfðu mikil áhrif á mig segir okkur hvað við skólafólk erum miklar fyrirmyndir og áhrifavaldar. Ég var svona nemandi sem naut þess að aðstoða kennarann og reyndi alltaf að sitja fremst,“ segir Ólöf sem á unglingsárum starfaði í sex sumur í sumarbúðunum fyrir fötluð börn í Reykjadal.
„Vinnan í sumarbúðunum hafði mikil áhrif á mig. Var mér dýrmæt reynsla. Ég fór svo í Kennaraháskólann að loknu stúdentsprófi og svo beint í kennsluna. Ég byrjaði að kenna árið 1992 í Flataskóla en þar hafði ég líka verið nemandi alla mína barnaskólagöngu. Þar áður hafði ég kennt í forföllum í Öldutúnsskóla. Í Flataskóla var ég í 13 ár en hóf þá störf í nýstofnuðum Sjálandsskóla og þar var ég í fimm ár, fyrst sem kennari og síðar aðstoðarskólastjóri. Það var mjög lærdómsríkt að byggja upp nýjan skóla sem byggist á öðrum hugmyndum en ég hafði áður unnið við. Í fyrravetur var ég sjálf nemandi en ég lauk meistaraprófi frá HÍ í stjórnun menntastofnana. Og nú er ég aftur að byrja í Flataskóla en núna sem skólastjóri.“
Ítarlegt viðtal er við Ólöfu í Skólablaðinu sem fylgir Morgunblaðinu í dag.





































