Fundur klukkan 11

Merki Félags leikskólakennara.
Merki Félags leikskólakennara.

Sáttafundur í kjaradeilu leikskólakennara verður haldinn í húsnæði ríkissáttasemjara klukkan ellefu.

Verkfall Félags leikskólakennara hefst á mánudaginn, 22. ágúst, verði ekki samið fyrir þann tíma.

Lítið hefur miðað í viðræðum undanfarna daga og sagði Haraldur Freyr Gíslason, formaður félags leikskólakennara að loknum fundi í gær að deilendur væru engu nær samkomulagi.

Mörg fyrirtæki hafa gert ráðstafanir komi til verkfalls.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert