Sólheimadómnum verður áfrýjað
Velferðarráðherra hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sólheima í Grímsnesi gegn íslenska ríkinu til Hæstaréttar. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnti ákvörðunina á fundi ríkisstjórnar í dag en hún var tekin í samræmi við álit ríkislögmanns.
Sólheimar höfðuðu málið vegna 4% skerðingar fjárframlags til stofnunarinnar árið 2009. Krafist var viðurkenningar á því að skerðingin væri ólögmæt og til vara að um væri að ræða vanefnd þjónustusamnings ríkisins við Sólheima.
Ríkið var sýknað af aðalkröfu Sólheima í málinu og var hvorki fallist á að brotið hefði verið gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar né 76. gr. stjórnarskrárinnar um rétt til framfærsluaðstoðar. Aftur á móti var það niðurstaða dómsins að með því að skerða fjárframlag til Sólheima um 4% með fjárlögum ársins 2009 hefði ríkið vanefnt samningsskuldbindingar sínar samkvæmt þjónustusamningi. Sjá frétt mbl.is um dóminn hér.
Samkvæmt upplýsingum frá velferðarráðuneytinu telur ráðuneytið ýmis veigamikil rök fyrir því að áfrýja dómnum. Helstu rök fyrir áfrýjun eru þessi samkvæmt tilkynningu:
- Samkvæmt dóminum felst vanefnd samningsins í ákvörðun Alþingis um að skerða framlag til Sólheima á fjárlögum ársins 2009. Þetta eitt og sér er að mati ráðuneytisins tilefni til áfrýjunar þar sem það hljóti ávallt að vera forsenda samninga sem þessara að fé fáist á fjárlögum. Bendir ráðuneytið á að í einni grein samningsins er sérstakur fyrirvari af hálfu ráðuneytisins um fjárveitingu á fjárlögum.
- Ráðuneytið dregur í efa þá niðurstöðu dómsins að samningur við Sólheima hafi verið í gildi 1. janúar 2009 enda var hann tímabundinn til ársloka 2008. Ráðuneytið telur orka tvímælis að unnt sé að túlka ákvæði samningsins um gildistíma, uppsögn og endurskoðun á þann veg að það nægi að annar aðilinn lýsi vilja til endurnýjunar hans. Vart fái staðist sú forsenda dómsins að þurft hafi að segja upp samningnum þegar samningstíminn var liðinn.
- Í dóminum er fallist á að ríkið hafi vanefnt samningsskuldbindingar sínar en aftur á móti er ekki ljóst hvort dómurinn leiðir til skaðabótaskyldu og ef svo er, hver eigi þá að bregðast við; ráðuneytið eða Alþingi, eða hvort heimilt sé að greiða bætur vegna vanefnda á samningi. Ráðuneytið telur nauðsynlegt að fá úr þessu skorið.
- Þjónustusamningar sem ríkið gerir eru á annað hundrað og þjónustusamningar á sviði velferðarráðuneytisins sem greitt er samkvæmt árið 2011 eru 27. Eru þá ótaldir eldri þjónustusamningar sem gerðir voru af hálfu félags- og tryggingamálaráðuneytisins vegna þjónustu við fatlaða sem nú eru á hendi sveitarfélaga, að meðtöldum samningi við Sólheima. Niðurstaða héraðsdóms í máli Sólheima gæti því haft fordæmisgildi og því mikilvægt að mati ráðuneytisins að áfrýja dóminum til að eyða óvissu varðandi forsendur og gildistíma þjónustusamninga.






































